Skipulögðu morð með dulkóðuðu símkerfi

Europol hefur lokað fyrir dulkóðað símkerfi sem notað var af …
Europol hefur lokað fyrir dulkóðað símkerfi sem notað var af skipulögðum glæpasamtökum í Evrópu við skipulagningu morða og fíkniefnaviðskipta. AFP

Europol hefur lokað fyrir dulkóðað símkerfi sem notað var af skipulögðum glæpasamtökum í Evrópu við skipulagningu morða og fíkniefnaviðskipta. 

Símkerfið, sem ber heitið EncroChat, var hakkað af frönsku og hollensku lögreglunni sem komst þannig yfir milljónir skilaboða sem sýndu samskipti glæpahópanna. Í kjölfarið hefur lögreglan framkvæmt yfir hundrað handtökur. 

Stofnendur EncroChat vöruðu notendur sína við í júní og hvöttu þá til að eyða öllum gögnum þar sem þeir höfðu fengið veður af því að yfirvöld væru komin á sporið. 

Aðgerðin gerði lögreglu kleift að „komast í innsta kjarna“ skipulagðra glæpahópa að sögn Wil van Gemert, aðstoðarforstjóra Europol, en greint var frá aðgerðum lögreglu á blaðamannafundi í Haag í dag. Rannsókn málsins hefur staðið yfir í um þrjú ár. 

Wil van Gemert, aðstoðarforstjóri Europol.
Wil van Gemert, aðstoðarforstjóri Europol. AFP

„Sum skilaboðanna gáfu til kynna áætlanir um yfirvofandi ofbeldisglæpi þar sem nauðsynlegt var að grípa strax inn í,“ sagði Gemert. 

90-100% notenda EncroChat tengjast einhvers konar glæpastarfsemi samkvæmt rannsókn lögreglu og höfðu þeir allir allir afnot af dulkóðuðum símum, alls um 60 þúsund talsins. 

Í kjölfar afhjúpunarinnar hefur hollenska lögreglan upprætt 19 fíkniefnaverksmiðjur, lagt hald á mörg þúsund kíló af metamfetamíni og kókaíni og handtekið yfir 100 manns, þar á meðal tvo af eftirsóttustu fíkniefnasmyglurum landsins, að sögn Andy Kraag, yfirmanns miðlægrar rannsóknardeildar hollensku lögreglunnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert