Verði lokað ef enginn kaupir fyrir 15. september

Samsett mynd af TikTok og Trump Bandaríkjaforseta.
Samsett mynd af TikTok og Trump Bandaríkjaforseta. AFP

Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að samfélagsmiðlinum vinsæla TikTok verði lokað í Bandaríkjunum ef hann verður ekki seldur bandarísku fyrirtæki fyrir 15. september.

„Ég lagði til dagsetningu í kringum 15. september og þá verður því lokað í Bandaríkjunum,“ sagði forsetinn við blaðamenn um fyrirtækið.

„Því verður lokað 15. september nema Microsoft eða einhverjir aðrir geta náð samningi og keypt það.“

Í morgun kom fram að Microsoft hefði staðfest að það ætlaði að hefja viðræður að nýju um kaup á bandaríska hluta TikTok. Microsoft gerði hlé á viðræðum við kín­verska fyr­ir­tækið Byted­ance um mögu­leg kaup á TikTok eft­ir að Trump lét í ljós að hann væri and­snú­inn slík­um viðskipt­um.

Hann hefur látið hafa eftir sér að hann vilji banna TikT­ok í Banda­ríkj­un­um af ótta við að samfélagsmiðillinn sé notaður sem njósna­tæki fyr­ir Kín­verja.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert