Hver er framtíð Líbanons?

Líbanon mátti sannarlega ekki við því áfalli sem sprengingin var …
Líbanon mátti sannarlega ekki við því áfalli sem sprengingin var enda staðan á efnahagsástandi og stjórnkerfi landsins mjög slæm fyrir. AFP

Andstæðingar stjórnvalda í Líbanon telja að afsögn ríkisstjórnar landsins muni ekki hafa í för með sér raunverulegar breytingar á stjórnkerfi landsins. Þannig getur ríkisstjórnin setið áfram þrátt fyrir að hafa sagt af sér þó völd hennar séu takmörkuð. Sömuleiðis hefur afsögnin ekki endilega í för með sér tafarlausar þingkosningar, að því er fram kemur í ítarlegri fréttaskýringu New York Times um málið.

Nokkrum dögum eftir að gríðarstór sprenging olli mikilli eyðileggingu í höfuðborg Líbanons, Beirút, dró að minnsta kosti 171 til dauða og skildi þúsundir eftir særð, sagði ríkisstjórn landsins af sér á mánudag, í kjölfar mikillar reiði óbreyttra borgara vegna aðgerðaleysis ríkisstjórnarinnar.

Mynd sem tekin var í dag á minningarathöfn um þau …
Mynd sem tekin var í dag á minningarathöfn um þau sem létust í sprengingunni. AFP

Ríkisstjórnin sem sagði af sér starfar enn

Aðgerðasinnar, sem hafa lengi mótmælt gölluðu stjórnkerfi landsins sem sagt er fullt af spillingu og veitingarvaldi, og íbúar Líbanon sem eru reiðir stjórnvöldum fyrir aðgerðarleysi sem gæti hafa leitt til sprengingarinnar í Beirút, höfuðborg landsins, telja afsögnina þó ekki nóg, af framangreindum ástæðum.

Eins og stendur starfar ríkisstjórnin fyrrverandi sem utanþingsstjórn og einbeitir sér að því að bjarga því sem bjargað verður í kjölfar sprengingarinnar. Helsta höfn landsins er eyðilögð eftir sprenginguna en harmleikurinn varð þar. Þá eru innviðir eins og sjúkrahús mörg óstarfhæf vegna eyðileggingarinnar sem varð af völdum sprengunnar. Hundruð þúsunda misstu heimili sín í sprengjunni.

Skip við bryggjuna í Beirút sem eyðilagðist að sjálfsögðu mikið …
Skip við bryggjuna í Beirút sem eyðilagðist að sjálfsögðu mikið í sprengingunni. AFP

Höfnin aftur í notkun

Þrátt fyrir að höfnin sé gjöreyðilögð hefur hún nú verið tekin í notkun að nýju, einungis viku eftir að hörmungarnar dundu yfir íbúa Beirút. Að sjálfsögðu er þó ekki hægt að nota höfnina eins og áður var og er hún einungis nýtt til að koma nauðsynjavörum til landsins, að því er fram kemur í umfjöllun Al Jazeera (https://www.aljazeera.com/news/2020/08/beirut-port-resumes-partial-operations-week-blast-200812111544497.html) um málið en Raoul Nehme, efnahagsráðherra Líbanons setti inn færslu á Twitter um málið í morgun.

https://publish.twitter.com/?query=https%3A%2F%2Ftwitter.com%2FRaoulNehme%2Fstatus%2F1293459986685861888&widget=Tweet

Hassan Diab, forsætisráðherra Líbanons, segir efnahagsástandið orsakast af djúpri spillingu …
Hassan Diab, forsætisráðherra Líbanons, segir efnahagsástandið orsakast af djúpri spillingu í landinu. AFP

En hvað gerist næst?

Það að nýja ríkisstjórn vanti þýðir ekki endilega að gengið verði til kosninga.

Þegar Hassan Diab, forsætisráðherra Líbanons, tilkynnti að ríkisstjórnin, myndi segja af sér á mánudagskvöld minntist hann á að ríkisstjórnin myndi starfa sem utanþingsstjórn þar til ný ríkisstjórn væri tilnefnd. Margir telja að í millitíðinni verði pólitíkin í landinu nokkurn veginn lömuð.

Í afsagnarræðu sinni sagði Diab sjálfur að kenna mætti djúpri spillingu sem fyndist í öllum hlutum ríkisins um slæma efnahagsstöðu landsins, ekki ríkisstjórn hans.

Gamla ríkisstjórnin má halda áfram að hittast, eins og staðan er núna en hún hefur ekki völd til þess að leggja fram lagafrumvörp eða gefa út tilskipanir.

Forsetinn má tilnefna nýja ríkisstjórn

Stjórnkerfi Líbanons gerir ráð fyrir því að Michael Aoun, forseti Líbanons, megi tilnefna ríkisstjórn í samráði við þing landsins, án þess að gengið sé til kosninga að nýju. Forsetinn hefur þó verið þögull hingað til og má búast við því að bíða þurfi verulega lengi eftir breytingum á stjórnkerfi landsins.

Líbanskir sjálfboðaliðar hafa tekið til hendinni í Beirút eftir sprenginguna.
Líbanskir sjálfboðaliðar hafa tekið til hendinni í Beirút eftir sprenginguna. AFP

Afsögn ríkisstjórnarinnar hefur varla sefað mótmælendurna neitt

Mótmæli gegn stjórnvöldum í Líbanon hafa haldið áfram þrátt fyrir afsögn ríkisstjórnarinnar en aðgerðarsinnar segja að afsögnin mæti ekki kröfum þeirra um að pólitíska elítan afsali völdum sínum.

Margir Líbanir telja að með afsögn ríkisstjórnarinnar standi þeir frammi fyrir sömu stöðu og síðasta haust þegar mótmælendur knúðu fram afsögn Saad Hariri, þáverandi forsætisráðherra landsins. Honum var ekki skipt út fyrr en í febrúar á þessu ári og tók Diab, sem nú hefur sagt af sér, þá við. Lítið breyttist í stjórnkerfi landsins eftir að Hariri var skipt út. 

Til átaka hefur komið á milli öryggissveita og mótmælenda.
Til átaka hefur komið á milli öryggissveita og mótmælenda. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert