Söfnuðu 16 milljónum handa íbúum Líbanons

Líbönsk stúlka með líbanska fánann vafinn utan um sig horfir …
Líbönsk stúlka með líbanska fánann vafinn utan um sig horfir á svæðið þar sem sprengingarnar urðu. AFP

Rúmlega 16 milljónir króna söfnuðust í neyðarsöfnun Rauða krossins vegna sprenginganna í Beirút.

Samtals söfnuðust 16.224.530 krónur og alls lögðu 1.752 einstaklingar, samtök og fyrirtæki söfnuninni lið auk átta milljóna sem koma frá utanríkisráðuneytinu

„Við erum mjög þakklát fyrir þau góðu viðbrögð og skilning sem landsmenn hafa sýnt íbúum Líbanons á þessum erfiðu tímum“ segir Kristín S. Hjálmtýsdóttir, framkvæmdastjóri Rauða krossins, í tilkynningu.

Allt söfnunarféð rennur beint til lífsbjargandi verkefna Rauða krossins í Líbanon sem mun vinna að nauðsynlegu uppbyggingarstarf í kjölfar sprenginganna sem sviptu a.m.k. 178 lífinu. Um 6.000 slösuðust og um 300.000 urðu heimilislaus.

AFP

Framundan er flókið verkefni sem lýtur að því að mæta þörfum þolenda og útvega meðal annars fæði, lyf og húsaskjól, tryggja aðgengi að heilbrigðisþjónustu og veita fólki sálrænan stuðning.

Á sama tíma þarf að hefta frekari útbreiðslu COVID-19, en faraldurinn gerir allt hjálparstarf erfiðara og flóknara á vettvangi.

Rauði krossinn þakkar almenningi og utanríkisráðuneytinu innilega fyrir stuðninginn við þolendur í Beirút, að því er segir í tilkynningunni.

Sjálfboðaliðar að störfum í Beirút eftir sprengingarnar sem þar urðu.
Sjálfboðaliðar að störfum í Beirút eftir sprengingarnar sem þar urðu. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert