Frakkar stefna á að hefja umfangsmikla bólusetningu fyrir alla þjóðina gegn Covid-19 frá apríl til júní á næsta ári. Emmanuel Macron Frakklandsforseti greindi frá þessu í dag.
Fyrst verða viðkvæmustu hóparnir bólusettir snemma á næsta ári og eftir það hefst önnur herferð þar sem afgangurinn af þjóðinni verður bólusettur, sagði Macron á blaðamannafundi.
Jean Castex, forsætisráðherra Frakklands, sagði á þinginu að fólk á dvalarheimilum fyrir aldraða og einhverjir starfsmenn þar verði í forgangi vegna bólusetningar.
Greint var frá því í gær að bandaríska lyfjafyrirtækið Moderna myndi óska eftir heimild yfirvalda í Evrópu og Bandaríkjunum til að setja bóluefni fyrirtækisins við kórónuveirunni á markað. Rannsókn hefur leitt í ljós að bóluefnið virkar í 94,1% tilvika við veirunni.