Rúta steyptist fram af vegbrú

Myndin tengist efni fréttarinnar ekki beint. Rútuna sem um ræðir …
Myndin tengist efni fréttarinnar ekki beint. Rútuna sem um ræðir má sjá neðar í fréttinni. AFP

Að minnsta kosti átta slösuðust í Bronx-hverfinu í New York í Bandaríkjunum eftir að rúta steyptist fram af brú í morgun. Þetta kemur fram á vef BBC. 

Slökkviliðið í New York birti mynd af rútunni á twitter þar sem hún sést hanga fram af brúnni. Aftari hluti rútunnar var enn á brúnni en sá fremri snerti veginn fyrir neðan. 

Bílstjóri rútunnar er meðal þeirra slösuðu og er ástand hans sagt alvarlegt. 

Ekki liggur fyrir hvers vegna rútan fór fram af brúnni.

„Rútan féll úr 50 feta (15 metra) hæð á veginn fyrir neðan. Áverkar þeirra sem slösuðust eru í samræmi við fall úr svo mikilli hæð,“ sagði Paul Hopper varaslökkviliðsstjóri 

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert