Tveir dómarar myrtir

Öryggissveitir standa vörð um vettvang morðsins á tveimur dómurum við …
Öryggissveitir standa vörð um vettvang morðsins á tveimur dómurum við Hæstarétt Afganistan. AFP

Tveir kvenkyns dómarar við Hæstarétt Afganistans hafa verið skotnir til bana. 

Konurnar voru myrtar af óþekktum mönnum þegar þær voru á leið sinni til vinnu fyrr í dag. Undanfarið hefur verið talsvert um morð á blaðamönnum, mannréttindafrömuðum og stjórnmálamönnum í Afganistan. 

Fram kemur á BBC að konurnar hafi verið skotnar í umsátri snemma á sunnudagsmorgun. Bílstjóri annarrar þeirra er talsvert slasaður. 

Atvikið átti sér stað í Qala-e-Fathullah-hverfinu í höfuðborginni Kabúl. Enginn hefur lýst ábyrgð á árásinni. Þó eru talíbanar grunaðir um aðrar nýlegar árásir, án þess þó að aðild þeirra hafi verið staðfest.

AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert