Samþykkir óháða rannsókn á ásökunum um áreitni

Andrew Cuomo, ríkisstjóri New York, segist ekki hafa áreitt konurnar …
Andrew Cuomo, ríkisstjóri New York, segist ekki hafa áreitt konurnar kynferðislega. AFP

Andrew Cuomo, ríkisstjóri New York, hefur fallist á að fram fari óháð og sérstök rannsókn á meintri kynferðislegri áreitni hans í garð tveggja fyrrverandi starfsmanna hans. Cuomo neitar sök.

Í viðtali New York Times við Charlotte Bennet, fyrrverandi ráðgjafa ríkisstjórans á sviði heilbrigðismála, sem birtist í dag, komu fram ásakanir á hendur Cuomo. Aðeins eru fjórir dagar síðan Lindsey Boylan, annar fyrrverandi ráðgjafi demókratans, sakaði hann um kynferðislega áreitni.

Benn­ett, sem er 25 ára, seg­ir að áreitn­in hafi byrjað í maí síðastliðnum, þegar kór­ónu­veirufar­ald­ur­inn stóð sem hæst í New York-ríki. Hún seg­ir Cu­omo hafa spurt hana óviðeig­andi spurn­ing­ar um einka­líf sitt þegar þau voru ein á skrif­stofu hans, meðal ann­ars hvort hún myndi íhuga að stunda kyn­mök með eldri manni. Þá seg­ir Benn­ett að Cu­omo hafi sjálf­ur sagst hafa áhuga á að eiga í sam­bandi við kon­ur á þrítugs­aldri. 

Nokkrum klukkustundum eftir að grein New York Times birtist sendi lögfræðingur Cuomo, Beth Garvey, út yfirlýsingu þar sem tilkynnt var að til að koma í veg fyrir að pólitík eða önnur utanaðkomandi áhrif myndu lita rannsóknina hefði ríkisstjórinn beðið Letitiu James, ríkissaksóknara New York, og Janet DiFiore, dómara í New York, að skipa saman „sjálfstæðan og hæfan lögfræðing í einkageiranum“ til að leiða rannsóknina og gefa út skýrslu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert