Sviku tugi milljarða út úr ríkissjóði Danmerkur

Um afar háar fjárhæðir er að ræða. Myndin sýnir dönsku …
Um afar háar fjárhæðir er að ræða. Myndin sýnir dönsku lögregluna að störfum. AFP

Saksóknarar í Damörku hafa ákært þrjá Breta og þrjá Bandaríkjamenn fyrir að hafa svikið yfir 1,1 milljarð danskra króna, eða um 22 milljarða íslenskra króna, út úr ríkissjóði Danmerkur í gegnum þýskan banka.  

Tveir breskir ríkisborgarar höfðu áður verið ákærðir vegna annars svikamáls þar sem 12,7 milljarðar danskra króna voru sviknir út úr ríkissjóðnum.  

Saksóknarar telja að þessir sex sem núna hafa verið ákærðir hafi verið höfuðpaurarnir í svindlinu, að því er BBC greindi frá.  

Ef þeir verða fundnir sekir eiga þeir yfir höfði sér allt að 12 ára fangelsi.  

Málið tengist rannsókn á svokölluðum CumEx-skjölum. Þar hafði hóp­ur alþjóðlegra blaðmanna birt gögn sem sýna að nokkr­ir af stærstu bönk­um heims eru flækt­ir inn risa­vaxið fjár- og skattsvika­mál, lík­lega það stærsta í sög­unni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert