Nokkrir starfsmenn lyfjafyrirtækis hafa verið handteknir í Indónesíu sakaðir um að hafa þvegið og selt aftur notaða Covid-pinna sem notaðir eru við sýnatöku í nefi. Talið er að notaðir sýnapinnar hafi verið nýttir við skimun á allt að níu þúsund farþegum á flugvellinum í Medan.
Lyfjafyrirtækið Kimia Farma, sem er í eigu indónesíska ríkisins, á yfir höfði sér skaðabótamál af hálfu farþega sem pinnarnir voru notaðir á.
Að sögn lögreglu telur hún að svikin hafi verið í gangi frá því í desember á Kualanamu-flugvellinum í Medan á Norður-Súmötru. Farþegar verða að geta framvísað neikvæðu skimunarprófi vilji þeir fljúga í Indónesíu og flugvellir landsins bjóða upp á skimun fyrir flug fyrir þá sem það vilja.
Flugvallaryfirvöld hafa notað skyndipróf sem mæla mótefnavaka (antigen) en Kimia Farma hefur annast dreifingu þeirra.
Í kjölfar kvartana farþega um að þeir hafi fengið ranga jákvæða niðurstöðu úr prófun á flugvellinum ákvað lögreglan að senda lögreglumann dulbúinn sem ferðamann í slíka skimun. Þegar hann fékk jákvæða niðurstöðu úr prófinu mættu fleiri lögreglumenn á vettvang og gerðu húsleit á skimunarstaðnum. Þar fundu þeir notuð skimunarpróf sem höfðu verið endurnýtt.