Borgarstjóri Lundúna endurkjörinn

Sadiq Khan gat fagnað sigri í kvöld.
Sadiq Khan gat fagnað sigri í kvöld. AFP

Borgarstjóri Lundúna, Sadiq Khan, hefur verið endurkjörinn í embættið. Sigraði hann frambjóðanda Íhaldsflokksins, Shaun Bailey, en Khan bauð sig fram fyrir Verkamannaflokkinn.

Hann var fyrst kjörinn til að gegna embætti borgarstjóra árið 2016.

Í kosningunum nú hlaut hann rétt rúmlega 1,2 milljónir atkvæða. Mjórra var á munum en stjórnmálaskýrendur höfðu spáð, en Bailey fékk samtals tæplega 978 þúsund atkvæði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert