Vilja ekki lengur kaupa Grænland

Blinken á blaðamannafundi í Kaupmannahöfn fyrr í dag.
Blinken á blaðamannafundi í Kaupmannahöfn fyrr í dag. AFP

„Stutta svarið er nei,“ svaraði bandaríski utanríkisráðherrann Antony Blinken, þegar hann var spurður hvort Bandaríkin hefðu enn áhuga á að kaupa Grænland. Blaðamaður danska ríkisútvarpsins varpaði spurningunni fram í viðtali fyrr í kvöld.

Þegar síðasti utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Mike Pompeo, heimsótti Danmörku síðasta sumar hafði Donald Trump varpað upp þeirri hugmynd að Bandaríkin myndu festa kaup á Grænlandi, sem er nú undir stjórn Danmerkur. 

„Ég vil spyrja þig að því sama,“ sagði blaðamaður DR og uppskar hlátur frá Blinken. 

„Stutta svarið er nei. Hérna eru okkar áherslur: Við erum með gott samband við Danmörku og sambandið við Grænland er engin undantekning þar, það samband fer vaxandi. Það er á þeim grundvelli sem við viljum styrkja samstarf með þessum þjóðum. Ég sé mikil tækifæri í viðskiptum, tækni, menntun og túrisma. Það er það sem við þurfum að einblína á,“ sagði Blinken.  

Samband Bandaríkjanna og Kína flókið

„Pompeo lagði nokkra áherslu á það að hann vildi ekki að Kína næði fótfestu á Grænlandi. Viljið þið vera eina samstarfsríki Danmerkur eða eru aðrir líka velkomnir?“ spurði blaðamaður DR.

„Þegar það kemur að Kína finnst mér mikilvægt að hafa nokkra hluti í huga. Þetta er á margan hátt erfitt samband,“ svaraði hann. Bandaríkin vildu gæta þess að Kína stæði við skuldbindingar sínar og færi eftir leikreglum sem Danir og Bandaríkjamenn hafa sett sér. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert