Aðgerðasinni á vegum Greenpeace-samtakanna slapp naumlega við að vera skotinn niður af leyniskyttum er hann sveif inn á fótboltavöll rétt áður en flautað var til leiks Þýskalands og Frakklands á EM í knattspyrnu í gær, segir Joachim Herrmann, innanríkisráðherra Bæjaralands í Þýskalandi, við fréttastofu AFP.
Að sögn ráðherranns voru leyniskyttur meðvitaðar um fallhlífarstökkvarann og tilbúnar að skjóta hann niður ef þyrfti.
„Ef lögreglan hefði komist að þeirri niðurstöðu að um hryðjuverkaárás væri að ræða hefði maðurinn borgað fyrir það með lífi sínu,“ segir Hermann.
Þá segir hann stórt merki Greenpeace-samtakanna á gulri fallhlíf mannsins hafa verið það sem bjargaði lífi hans.
Greenpeace hefur beðist afsökunar á atvikinu, sem fór að þeirra sögn ekki samkvæmt plani.
Tveir áhorfendur slösuðust þegar fallhlífarstökkvarinn lenti í miðri áhorfendastúkunni. Hann hafði reynt að nauðlenda en það gekk ekki betur en svo að hann flæktist í vírum á vellinum, sem settir voru upp fyrir sjónvarpsupptöku, sem varð til þess að hann féll til jarðar í áhorfendastúkunni eins og fyrr segir.
Báðir hinna slösuðu voru fluttir til aðhlynningar á sjúkrahúsi eftir atvikið en hafa nú verið útskrifaðir, að sögn Svens Müllers, talsmanns lögreglunnar í München.
Greenpeace-aðgerðasinnanum, sem er 38 ára gamall íbúi Pforzheim-borgar í sambandslandinu Baden-Württemberg í Þýskalandi, varð ekki meint af lendingunni en var þó handtekinn í áhorfendastúkunni eftir atvikið.
Manninum hefur verið sleppt úr varðhaldi en hann á yfir höfði sér ákærur fyrir brot á flugumferðarlögum, fyrir að stofna flugumferð í hættu, fyrir að valda alvarlegum líkamsmeiðingum og fyrir að fara inn á fótboltavöllinn í leyfisleysi, samkvæmt upplýsingum Müllers.