Fjórða flugskeytið á tveimur vikum

Flugskeytunum tveimur var skotið á loft frá Pyongyang.
Flugskeytunum tveimur var skotið á loft frá Pyongyang. AFP

Yfirvöld í Norður-Kóreu skutu tveimur flugskeytum á loft í dag en þetta er í fjórða sinn sem það er gert í þessum mánuði í tilraunaskyni.

Yf­ir­völd­ í Suður-Kór­eu og Jap­an staðfesta að flugskeytunum hafi verið skotið á loft frá flugvelli í Pyongyang, höfuðborg Norður-Kóreu.

Yf­ir­völd í Banda­ríkj­un­um hafa for­dæmt fyrri tvö flugskeytin og hvetja yfirvöld í Norður-Kóreu að „hætta ólöglegri starfsemi sinni sem grefur undan stöðugleika“.

Nobuo Kishi, varnarmálaráðherra Japan, segir að Norður-Kórea sé að reyna að „betrumbæta tækni sína og getu í leynilegum aðgerðum“.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert