Pólverjar og Ungverjar hafna nýrri skattalöggjöf

Pólverjar og Ungverjar halda áfram að leggja stein í götu …
Pólverjar og Ungverjar halda áfram að leggja stein í götu annarra aðildarríkja ESB. AFP

Tilraunir Evrópusambandsins til þess að koma á almennum lágmarksskatti á fjölþjóðleg stórfyrirtæki innan landamæra sambandsins urðu að engu í dag vegna mótstöðu Póllands og Ungverjalands. 

Mótstaða ríkjanna tveggja er Frökkum ansi þungbær, sem lögðu mikla áherslu á að ná málinu í gegn í forsetatíð sinni í Evrópuráðinu. 

Markmið Frakka var að gera OECD-samþykkt um lágmarksskattinn að lögum innan Evrópusambandsins, sem yrði þannig fyrsta ríkjasambandið til slíks. Samþykktin gerir ráð fyrir að 15% skattur að lágmarki verði settur á tekjur fjölþjóðlegra stórfyrirtækja. 

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem slær í brýnu milli Pólverja, Ungverja og annarra aðildarríkja í Evrópusambandinu. Andstaða við Evrópusambandið er ríkjandi í Póllandi og Ungverjalandi og leiðtogar ríkjanna beggja leggja sig gjarnan alla fram við að leggja stein í götu sambandsins. 

Lágmarksskatturinn er svo bara einn angi OECD-samþykktarinnar sem málið snýst um. Andstaða Pólverja og Ungverja snýst aðallega um hinn angann sem hverfist um flókna skammheimtu í þeim löndum sem tekjur stórfyrirtækja verða til. Ríkin tvö vilja meina að verið sé að draga úr samkeppnishæfni með fyrirhuguðum lögum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert