Brú hrundi rétt fyrir ræðu Biden

Brúin sem hrundi.
Brúin sem hrundi. AFP

Brú hrundi snemma í morgun í Pittsburgh í Bandaríkjunum nokkrum klukkustundum áður en Joe Biden Bandaríkjaforseti var væntanlegur til borginnar til að flytja ræðu varðandi billjón dala innviðauppbyggingu.

Frumvarp Biden um umfangsmikla innviðauppbyggingu hvað varðar samgöngu- og fjarskiptakerfi Bandaríkjanna var samþykkt í nóvember. Það kallar á útgjöld sem nema um þúsund millj­örðum, þ.e. einni bill­jón, Banda­ríkja­dala.

Þrír voru fluttir á sjúkrahús eftir að brúin hrundi en meiðsli þeirra eru ekki alvarleg.

Atvikið vakti athygli vegna væntanlegra ræðuhalda Biden í borginni þar sem hann ætlaði að fjalla um tilraunir sínar til að efla efnahag Bandaríkjanna eftir kórónuveirufaraldurinn.

Jen Psaki, fjölmiðlafulltrúi Hvíta hússins, greindi frá því á Twitter að Biden vissi af atvikinu og muni halda sínu striki í dag.

Enn fremur er forsetinn og fylgdarlið tilbúið að veita alla þá aðstoð sem þurfa þykir vegna málsins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert