67 slasaðir og sautján saknað á Kúbu

AFP/Yamil Lage

Alls eru 67 slasaðir eftir að elding kveikti í olíutanki í borginni Matanzas í Kúbu. Þá er sautján eintaklinga saknað, flestir þeirra slökkviliðsmenn.

Eldurinn dreifði sér frá olíutankinum yfir í annan tank og svífur nú svart reykský yfir borginni. Um 800 manns hefur verið gert að yfirgefa svæðið.

Sautján slökkviliðsmanna er saknað.
Sautján slökkviliðsmanna er saknað. AFP/Yamil Lage

Forsætisráðherra landsins greindi frá því á Twitter að yfirvöld ynnu nú að því að koma í veg fyrir að eldurinn myndi breiðast út enn frekar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert