Þýskaland á höttunum eftir jarðgasi í Persaflóa

Olaf Scholz ásamt ráðherra lofstlagsbreytinga- og umhverfis Mariam Almheiri í …
Olaf Scholz ásamt ráðherra lofstlagsbreytinga- og umhverfis Mariam Almheiri í Abú Dabí í dag. AFP

Sameinuðu arabísku furstadæmin komust í dag að samkomulagi við Þýskaland um áframhaldandi kaup Evrópuríksins á fljótandi jarðgasi og dísel. Samkomulagið kemur til vegna viðleitni Þýskalands til þess að hætta að kaupa jarðgas frá Rússlandi.

Samkomulag Þýskalands og Sameinuðu arabísku furstadæmana er gert undir formerkjum „orkuöryggis“ og hefur Olaf Scholz, kanslari Þýskalands, lýst yfir ánægju með samkomulagið samkvæmt ríkismiðli furstadæmana. Scholz er í opinberri heimsókn í ríkinu og fundaði þar með Zayed Al-Nahyan, forseta. 

Fleiri fundir um helgina

Scholz hyggst funda með leiðtogum í Persaflóa til þess að liðka fyrir fleiri samningum af þessu tagi. 

Í gær sótti kanslarinn krónprins Sádi-Arabíu heim, Mohammed bin Salman, og fer seinna í dag til Katar á fund Sheikh Tamim bin Hamad Al-Thani, emírs Katar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert