Rafmagni komið aftur á eftir mótmæli

Íbúar á götu úti í rafmagnsleysinu í gærkvöldi.
Íbúar á götu úti í rafmagnsleysinu í gærkvöldi. AFP

Rafmagni var að næstum öllu leyti aftur komið á í kvöld í Havana, höfuðborg Kúbu, í kjölfar þess að óveður gekk þar yfir á þriðjudag.

Fólk hafði þá tvö kvöld í röð flykkst út á götur til að mótmæla rafmagnsleysinu.

Frá kúbversku höfuðborginni í gær.
Frá kúbversku höfuðborginni í gær. AFP

Sjaldgæf mótmæli

Enn er rafmagnslaust á nokkrum öðrum svæðum utan höfuðborgarinnar.

Mótmæli á götum úti eru sjaldgæf í kommúnistaríkinu, en þau héldu áfram í dag í sumum hverfum Havana.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert