Íran: Amini hafi látist af völdum veikinda en ekki ofbeldis

Hjólreiðamaður ferðast framhjá veggmynd til heiðurs Masha Amini í París.
Hjólreiðamaður ferðast framhjá veggmynd til heiðurs Masha Amini í París. AFP/Julien De Rosa

Mahsa Amini lést af völdum veikinda en ekki högga eða áverka. Þetta kemur fram í opinberri skýrslu sem var birt í morgun, þremur vikum eftir að hún lést í haldi írönsku lögreglunnar.

Að sögn írönsku réttarmeinastofnunarinnar „lést Mahsa Amini ekki af völdum högga í höfuðið, mikilvæg líffæri eða í útlimi“, segir í skýrslunni sem var birt í ríkissjónvarpi landsins.

Fram kemur að dauði hennar tengist þess í stað „aðgerð vegna heilaæxlis þegar hún var átta ára“.

Hörð mót­mæli hafa geisað í Íran eftir að Amini lést í haldi lögreglunnar. Hún var handtekin fyrir að hafa brotið lög um notkun á höfuðslæðu.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert