Steinstytturnar á Páskaeyju illa farnar eftir eldsvoða

Margar styttur eru illa farnar eftir eldinn.
Margar styttur eru illa farnar eftir eldinn. AFP/Rapanui Municipality

Dularfullu steinstytturnar sem einkenna Páskaeyju eru margar illa leiknar eftir að eldur braust út á eyjunni á mánudaginn.

Eldurinn, sem braust út fyrr í vikunni, fór yfir tæplega 60 hektara lands. Talið er að um íkveikju hafi verið að ræða. BBC greinir frá.

Stytturnar, sem líkjast allar stórgerðu andliti, telja nokkur hundruð á eyjunni en ekki liggur fyrir hversu margar urðu fyrir tjóni af völdum eldsvoðans. Þær sem lentu í eldinum brunnu illa og eru svartar af sóti.

Pedro Edmunds, borgarstjóri eyjunnar, sagði skaðann óafturkræfan.

Eldurinn náði yfir 60 hektara landsvæði.
Eldurinn náði yfir 60 hektara landsvæði. AFP/Coanf
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert