Hleypur 100 maraþon á jafnmörgum dögum

Þrítugur Frakki hleypur hundrað maraþon á jafnmörgum dögum til að vekja athygli á kolefnisfótspori stórra íþróttaviðburða.

„Ég geri það sama við líkama minn og við gerum plánetunni,“ segir Nicolas Vandenelsken sem kallar sjálfan sig „vistvænan ævintýramann“.

Vandenelsken lauk 84. maraþoninu í París dag en það var með ráðum gert að hlaupa maraþonin hundrað á meðan að heimsmeistaramótið í fótbolta stæði yfir í Katar. Heimsmeistaramótið hefur meðal annars verið gagnrýnt fyrir kolefnisfótsporið sem það skilur eftir sig.

Síðasta hlaup Vandenelsken endar í Valenciennes í norðurhluta Frakklands þann 10. desember.

Flestir sem hlaupa maraþon hvíla sig eftir erfiðin en Vandenelsken …
Flestir sem hlaupa maraþon hvíla sig eftir erfiðin en Vandenelsken ætlar að bíða með að taka hvíldardag þangað til hann hefur hlaupið 100 hlaup á 100 dögum. AFP/Jamie Squire
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert