Yfirvöld í Moskvu kölluðu í dag norska sendiherrann á fund í kjölfar þess að fjöldi Rússa var handtekinn í Noregi fyrir að fljúga drónum á norsku yfirráðasvæði.
Samkvæmt upplýsingum frá rússneska utanríkisráðuneytinu var Robert Kvile, sendiherra Noregs í Rússlandi, sagt að Norðmenn yrðu að hætta að ofsækja rússneska ríkisborgara á grundvelli þjóðernis þeirra.
Rússneskur karlmaður var í síðustu viku dæmdur í 90 daga fangelsi fyrir að hafa flogið dróna inn á norskt yfirráðasvæði og þar með brotið í bága við bann sem tók gildi í kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu.
Aukinn öryggisviðbúnaður hefur verið í kringum mikilvæga innviði í Noregi síðustu mánuði.
Um tugur Rússa hefur verið handtekinn í Noregi á síðustu vikum, annars vegar fyrir að brjóta gegn banninu um notkun dróna á yfirráðasvæði Noregs og hins vegar fyrir að hafa myndað á svæðum sem talin eru „viðkvæm“.
Utanríkisráðuneyti Rússlands segir dómana pólitíska og að ekki hafi verið gætt að sanngirni.