Hvatti Pútín til að draga hermenn sína til baka

Olaf Scholz, kanslari Þýskalands.
Olaf Scholz, kanslari Þýskalands. AFP/Tobias Schwarz

Olaf Scholz, kanslari Þýskalands, þrýsti á Vladimír Pútín Rússlandsforseta að sækjast eftir diplómatískri lausn til að ljúka stríðinu í Úkraínu. Leiðtogarnir töluðust við í síma og hvatti Scholz Pútín til að draga hermenn sína til baka. 

„Kanslarinn hvatti rússneska forsetann til að komast að diplómatískri lausn sem fyrst, og í því felst að draga hermenn hans til baka,“ sagði Steffen Hebestreit, talsmaður kanslarans, eftir klukkustundar langan símafund leiðtoganna í dag. 

Þá fordæmdi Scholz árásir Rússa á borgaralega innviði í Úkraínu og ítrekaði hernaðarlegan stuðning Þjóðverja við Úkraínumenn.

Leiðtogarnir ræddu einnig um fæðuöryggi í heiminum og samþykktu að vera áfram í sambandi að sögn Hebestreit. 

Síðast töluðu leiðtogarnir saman í síma í september en þá hvatti Scholz Pútín einnig til að semja um frið. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert