Á þriðja þúsund hafa flúið eldgosið

Fólk stendur fyrir framan eldfjallið Semeru.
Fólk stendur fyrir framan eldfjallið Semeru. AFP/Juni Kriswanto

Viðbragðsaðilar hafa komið enn fleira fólki í nágrenni eldfjallsins Semeru í Indónesíu til bjargar. Yfirvöld vara við hættunni af völdum kólnandi hrauns.

Meira en 2.400 íbúar þorpa í nágrenni fjallsins hafa yfirgefið heimili sín og leitað skjóls í ellefu björgunarmiðstöðvum eftir að fjallið, sem er það hæsta á indónesísku eyjunni Java, gaus snemma í gærmorgun.

„Herinn, lögreglan, aðrir viðbragðsaðilar og embættismenn þorpa halda áfram að hjálpa fólki að komast í burtu frá Curah Kobokan þar sem búast má við heitu öskuskýi og köldu hrauni,“ sagði Abdul Muhari, talsmaður indónesískrar hamfarastofnunar.

„Eins og staðan er núna hafa 2.489 verið fluttir á brott.“

Stjórnvöld í Indónesíu hafa lýst yfir neyðarástandi næstu tvær vikurnar vegna eldgossins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert