Dómstóll í Wisconsin-ríki í Bandaríkjunum hefur dæmt karlmann sem skaut á börn sem köstuðu snjóboltum í bíl hans í 16 ára fangelsi.
ABC News greinir frá því að atvikið hafi átt sér stað í janúar árið 2020. Sjö börn voru þá að kasta snjóboltum í bíla sem keyrðu fram hjá í borginni Milwaukee. William Carson sneri þá við, fór út úr bíl sínum og skaut úr byssu að börnunum.
Tvö barnanna særðust er þau fengu skot í lærið og handlegginn. Þá hæfði skot jakka þriðja barnsins.
Saksóknarar í málinu fóru fram á 25 ára fangelsisdóm eftir að kviðdómur dæmdi Carson sekan í nóvember.
Hann mun nú sitja í fangelsi í 16 ár og vera á skilorði í tíu ár.