Fyrrverandi hermaður í ástralska flughernum hefur verið ákærður fyrir morð í kjölfar rannsóknar á meintum stríðsglæpum í Afganistan.
Hinn 41 árs gamli Oliver Schulz er fyrsti ástralski hermaðurinn sem ákærður er fyrir stríðsglæp samkvæmt áströlskum lögum. Hann getur átt yfir höfði sér allt að lífstíðarfangelsi.
Schulz var handtekinn í dag og verður leiddur fyrir dómara á morgun.
Ástralski ríkismiðillinn ABC segir að Schulz sé sá sem vísað var til sem hermaður C í heimildamynd ABC sem fletti ofan af meintum stríðsglæpum.
Í myndinni er sýnt hvernig hermaður C skýtur afganskan mann á hveitakri í Uruzgan-héraði í Suður-Afganistan árið 2012.
Í kjölfar fjögurra ára óformlegrar rannsóknar á meintum stríðsglæpum, sem hæstaréttardómarinn Paul Bereton leiddi, var formleg rannsókn sett af stað hjá OSI, embætti sérstaks rannsakanda.
Árið 2020 var svo svokölluð Bereton-skýrsla gefin út þar sem komist var að því að trúverðug sönnunargögn bentu til þess að ástralskir sérsveitarhermenn hafi vegið 39 manns á ólöglegan hátt í stríðinu í Afganistan.
Skýrslan benti á að 19 núverandi eða fyrrverandi sérsveitarhermann skyldu sæta lögreglurannsókn vegna morða á föngum, bændum eða öðrum óbreyttum borgurum á árunum 2009 til 2013.
Handtakan á Schulz er talin vera fyrsta handtakan í tengslum við rannsóknina. Ástralski herinn hefur sagt stríðsglæpina komna til vegna „óbeislaðrar stríðsmenningar“ meðal hóps hermanna.