Að minnsta kosti 25 látnir

Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur heitið stuðningi við íbúa Mississippi en að minnsta kosti 25 eru látn­ir eft­ir að hvirfil­byl­ur tætti sig í gegn­um ríkið á föstudagskvöld. 

ABC News greinir frá því að hvirfilbylurinn sé flokkaður á stigi fjögur af fimm mögulegum. Því hafi verið um að ræða sjaldgæft og afar kröftugt óveður. Einungis um 1% hvirfilbylja eru flokkaðir á stigi fjögur. Flestir eru á fyrsta stigi. 

Frá Rolling Fork.
Frá Rolling Fork. AFP/Will Newton

Fyrstu gögn sýna fram á að hvirfilbylurinn tætti sig í gegnum tæplega 100 kílómetra svæði á 70 mínútum. 

„Það er eins og sprenging hafi sprungið á svæðinu,“ sagði John Brown hjá Rauða krossi Bandaríkjanna, í samtali við AFP-fréttaveituna. Þá líkt hann svæðinu við stríðssvæði. 

Í bæn­um Roll­ing Fork, þar sem færri en tvö þúsund …
Í bæn­um Roll­ing Fork, þar sem færri en tvö þúsund manns búa, eru heilu raðirn­ar af hús­um og bygg­ing­um rúst­ir ein­ar eft­ir að hvirfil­byl­ur­inn fór yfir. AFP/Will Newton
AFP/Chandan Khanna
Sjálfboðaliðar aðstoða íbúa.
Sjálfboðaliðar aðstoða íbúa. AFP/Will Newton
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert