Kyrrsett í 20 daga fyrir að bjarga of mörgum

Björgunarskipið Louise Michel, hefur verið kyrrsett fyrir að óhlýðnast ítölskum …
Björgunarskipið Louise Michel, hefur verið kyrrsett fyrir að óhlýðnast ítölskum yfirvöldum, með því að bjarga fólki.

Björgunarskipið M.V. Louise Michel hefur verið kyrrsett á ítölsku eyjunni Lampedúsa eftir að hafa óhlýðnast fyrirmælum ítalskra yfirvalda varðandi björgunaraðgerðir á flóttafólki. Hekla María Friðriksdóttir, stjórnarmaður í samtökum sem reka skipið, ræddi við mbl.is um málið.

Skipið er nefnt eftir franska anarkistanum Louise Michel og sinnir björgunarstörfum á fólki á flótta í Miðjarðarhafi. Starfsemi bátsins byggir á gildum gegn kynþáttafordómum og fasisma. Skipið er auðþekkjanlegt en það er bleikt á lit og skartar Banksy listaverki á hliðinni, en listamaðurinn fjármagnar verkefnið.

Aðstæður óboðlegar

Louise Michel ásamt áhöfn þess eru nú kyrrsett á Lampedúsa í 20 daga, en það eru refsiaðgerðir yfirvalda, eftir að skipið sinnti fjórum björgunum í einni siglingu. 

„Það voru um 180 manns sem var bjargað, og aðstæður um borð eru ekki boðlegar til lengri tíma“ segir Hekla. Hán segir samtökin hyggjast áfrýja ákvörðun yfirvalda, þar sem þau telji sig hafa sinnt skyldu sinni í samræmi við alþjóðleg hafréttarlög.

Hekla er ekki um borð á skipinu í þetta sinn, en er í daglegum samskiptum við áhöfnina og aðra stjórnarmenn.

Ungabarn án meðvitundar en landhelgisgæsla sat hjá í 37 mínútur

Louise Michel framkvæmdi í síðustu viku fjórar björgunaraðgerðir þar sem mikið af fólki hafði endað í sjónum. Meðal annars voru móðir og ungabarn ásamt öðrum einstaklingi mjög illa haldin þegar skipið kom á vettvang, og missti barnið meðvitund á tímapunkti. Öll voru flutt  með sjúkraflutningi í hraði.

Ítalska landhelgisgæslan var að sögn Heklu fyrri til á vettvang, en hafi hins vegar  haldið kyrru fyrir og fylgst með fólkinu í vatninu úr fjarlægð. Þau hafi á endanum stigið inn, eftir 37 mínútur, og veitt aðstoð þegar áhöfn Louise Michel var að ljúka björgunaraðgerðum.

Hán segir mikið að gera í Miðjarðarhafinu og því sé það að vera kyrrsett enn erfiðara fyrir áhöfnina. „Það er mikið af bátum og búið að vera mikið af sjóslysum að undanförnu“ segir Hekla.

Hekla María Friðriksdóttir, stjórnarmaður björgunarskipsins M.V. Louise Michel.
Hekla María Friðriksdóttir, stjórnarmaður björgunarskipsins M.V. Louise Michel. Ljósmynd/Aðsend

Fólk er ekki að skella sér í skemmtisiglingu til að skoða Evrópu.“

„Það situr rosalega í okkur að vera kyrrsett í höfn, í Lampedúsa, þegar við gætum verið að aðstoða fólk tiltölulega stuttu frá.“.  segir Hekla og bætir við að þess væri óskandi að hjálparsamtök þyrftu ekki að sinna slíkum störfum, en að landhelgisgæsla Ítalíu og Möltu standi sig einfaldlega ekki í stykkinu.

Hekla bætir við að fyrst og fremst væri hægt að fyrirbyggja ástandið í Miðjarðarhafinu með því að tryggja löglegar og öruggar leiðir til að sækja um hæli í Evrópu. „Á meðan það eru engar löglegar leiðir færar, þá mun fólk  alltaf reyna að komast yfir því það er að flýja eitthvað. Fólk er ekki að skella sér í skemmtisiglingu til að skoða Evrópu.“


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert