„Ég er ennþá lifandi“

Frans Páfi ræddi við almenning og fjölmiðla þegar hann yfirgaf …
Frans Páfi ræddi við almenning og fjölmiðla þegar hann yfirgaf sjúkrahúsið í Róm í dag. AFP

Frans páfi var útskrifaður af sjúkrahúsi í dag eftir að hafa verið lagður inn vegna öndunarfærasýkingar á miðvikudaginn. Hann leggur leið sína núna aftur í Vatíkanið þar sem hann mun undirbúa sig fyrir dymbilvikuna og páska. 

Kíminn páfi

Páfinn var í góðu skapi og kíminn þegar hann yfirgaf Policl­inico A. Gem­elli sjúkrahúsið í Róm og var stutt í grínið þegar hann ræddi við margmenni sem hafði safnast saman til að taka á móti páfanum. Spurður hvernig honum liði svaraði Frans með stóru brosi: „Ég er ennþá lifandi.“

Á sjúkrahúsinu í gær heimsótti páfinn krabbameinsdeild barna á spítalanum og gaf börnum páskaegg og skírði vikugamlan dreng. Áður en hann yfirgaf sjúkrahúsið í dag veitti hann veiku fólki á sjúkrahúsinu blessun sína og stoppaði á leið sinni út til að bjóða faðmlög og biðja með foreldrum sem höfðu misst dóttur sína.

Miklar áhyggjur hafa verið til staðar meðal almennings og biskupa á Ítalíu vegna heilsu páfans en hann hefur þegar und­ir­ritað yf­ir­lýs­ingu um af­sögn úr embætti verði hann of veik­ur til þess að sinna skyld­um sín­um.

Frans Páfi ræddi við almenning og fjölmiðla þegar hann yfirgaf …
Frans Páfi ræddi við almenning og fjölmiðla þegar hann yfirgaf sjúkrahúsið í Róm í dag. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert