Myndskeið: Erdogan syngur fyrir aðdáendur

Erdogan var syngjandi sæll með niðurstöður kosninganna.
Erdogan var syngjandi sæll með niðurstöður kosninganna. AFP/Forsetaembætti Tyrklands

Recep Tayyip Erdogan, sem í kvöld var endurkjörinn forseti Tyrklands, söng fyrir aðdáendur sína í dag skömmu eftir að hann hafði lýst yfir sigri í kosningunum.

Erdogan hefur setið á forsetastóli í tuttugu ár og tryggði sér fimm í viðbót með sigrinum í dag. 

Erdogan var að vonum kampakátur með kosningarnar og gladdi aðdáendur sína með söngnum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert