Elizabeth Holmes, stofnandi blóðprufufyrirtækisins Theranos, mun hefja afplánun á ellefu ára fangelsisdómi í Byran-kvennafangelsinu í Texas-ríki í dag.
Samkvæmt dómskjölum skal Holmes gefa sig fram til afplánunar eigi síðar en klukkan 14 að staðartíma í dag.
Holmes hefur gengið laus gegn tryggingu frá því að hún var ákærð árið 2018. Hún var síðan sakfelld fyrir að blekkja fjárfesta í nóvember og dæmd í ellefu ára og þriggja mánaða fangelsi.
Samkvæmt alríkislögum skal Holmes afplána að minnsta kosti 85% fangelsisdómsins. Hún gerði tilraun til þess að áfrýja fangelsisdómi sínum en þeirri beiðni var hafnað.
Holmes og fyrrverandi framkvæmdastjóri Theranos, Ramesh „Sunny“ Balwani, þurfa einnig að greiða 452 milljónir bandaríkjadala, eða um 63,8 milljarða íslenskra króna í bætur til fórnarlamba þeirra svika sem þau stóðu á bak við. Balwani hlaut þrettán ára fangelsisdóm og hóf hann afplánun í apríl í fangelsi í Kaliforníu-ríki.
The Guardian greinir frá því að Holmes hafi varið síðustu dögum með börnunum sínum tveimur og eiginmanni sínum, Billy Evans.