Þrír fórust í eldsvoða á sjúkrahúsi í Austurríki

Mödling er um 14 kílómetra suður af Vín. Mynd úr …
Mödling er um 14 kílómetra suður af Vín. Mynd úr safni. AFP

Þrír fórust í eldsvoða á sjúkrahúsi nærri Vín, höfuðborg Austurríkis, í nótt. 

„Upptök eldsins eru enn óljós,“ sagði talskona sjúkrahússins í borginni Mödling.

Eldurinn braust út um klukkan eitt í nótt að staðartíma. 170 slökkviliðsmenn voru kallaðir út til að slökkva eldinn og tóku aðgerðir um tvær klukkustundir. 

Sjúklingar sjúkrahússins voru fluttir á aðrar stofnanir og eru eldsupptök nú til rannsóknar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert