Danny Masterson sekur um nauðgun

Danny Masterson varð frægur þegar hann lék Steven Hyde í …
Danny Masterson varð frægur þegar hann lék Steven Hyde í þáttaröðinni That '70s Show. AFP

Leikarinn Danny Masterson, sem þekktastur er fyrir hlutverk sitt sem Steven Hyde í þáttunum That '70s Show, var fundinn sekur í dag um að hafa nauðgað tveimur konum á heimili sínu í Hollywod Hills.

Um er að ræða atvik sem áttu sér stað árin 2001 og 2003. Hann var einnig kærður fyrir að nauðga einni annarri konu en kviðdómurinn taldi að ekki væri hægt að sanna það með nógu góðum sönnunargögnum. Saksóknari segir að Masterson hafi byrlað konunum og síðan beitt þær ofbeldi.

Um er að ræða annað skipti sem Masterson er stefnt fyrir dóm vegna ásakana um nauðgun en í desember tókst kviðdómi í Los Angeles ekki að kom­ast að niður­stöðu í máli gegn leikaranum. Þá neit­aði hann ásök­un­un­um og sagðist hafa verið of­sótt­ur vegna aðild­ar sinn­ar að Vís­inda­kirkj­unni.

Allar þrjár konunnar voru einnig meðlimir Vísindakirkjunnar á þeim tíma sem atvikin eiga að hafa átt sér stað. Tvær kvennanna sögðu að aðilar innan kirkjunnar hafi hvatt þær til þess að halda þessu leyndu.

Í kjölfar dómsins var Masterson settur í gæsluvarðhald en möguleiki er á því að hann muni þurfa að sæta allt að 30 ára fangelsisvist.

Masterson er þekktastur fyrir að leika Steven Hyde, eitt af aðalhlutverkunum, í That '70s Show, framhaldsþáttum sem voru afar vinsælir um aldamótin. Hann hefur einnig leikið í þáttunum The Ranch ásamt Ashton Kutcher, sem lék einnig eitt af aðalhlutverkunum í That 70s show.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert