Skógarbjörn fór inn í bakarí og át 60 bollakökur

Skógarbjörn. Mynd úr safni.
Skógarbjörn. Mynd úr safni. AFP

Starfsmenn bakarísins Taste by Spellbound í bænum Avon í Conneticut-ríki í Bandaríkjunum var illa brugðið þegar að óboðinn gestur gerði sér lítið fyrir og gekk inn í bakaríið inn um bakdyrnar. 

Þar var skógarbjörn á ferð en hann náði að klófesta bakka með 60 bollakökum sem hann gæddi sér síðan á. Fréttastofa BBC greinir frá þessu.

Að lokum náðu starfsmenn bakarísins að hrekja burt skógarbjörninn með ökutæki sínu. Skógarbjörninn hélt þá áfram leið sinni og snéri aftur í heimkynni sín.

Sjón er sögu ríkari en hér fyrir neðan er hægt að sjá myndskeið af atvikinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert