Van der Graaf viðurkennir að hafa myrt Pim Fortuyn

Dýraverndunarsinninn Volkert van der Graaf hefur viðurkennt að hafa myrt hollenska öfgahægrimanninn Pim Fortuyn, að því er segir í yfirlýsingum frá dómstóli í Amsterdam. Fortuyn var skotinn til bana fáeinum dögum fyrir kosningar í maí. Flokkur hans hlaut næstmest fylgi allra flokka í kosningunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert