Gekk um með höfuð mágkonu sinnar undir hendinni

Lögregla í Þýskalandi handtók í dag mann sem grunaður er um að hafa myrt mágkonu sína og skorið af henni höfuðið. Maðurinn var handtekinn í bænum Übach-Palenburg í vesturhluta Þýskalands þar sem hann gekk um götur með höfuð konunnar undir hendinni.

Maðurinn, sem er 24 ára gamall, veitti ekki mótspyrnu en hann var einnig með hníf í hendinni. Óttaslegnir vegfarendur og viðskiptavinir í verslunum sem hann fór inn í hringdu í lögregluna.

Lögreglan fann lík konunnar í íbúð mannsins skömmu eftir að hann var handtekinn. Ekki er vitað hvers vegna maðurinn myrti konuna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert