Presturinn ekki grófari en Biblían

Áfrýjunarréttur í Svíþjóð hefur fellt úr gildi dóm undirréttar yfir Hvítasunnupresti sem á síðasta ári var dæmdur í mánaðarfangelsi fyrir að tala gegn samkynhneigðum en í dómnum segir að presturinn hafi einungis nýtt sér lögbundið málfrelsi sitt til að tjá skoðanir sínar í málinu.

Presturinn Aake Green var fundinn sekur um það í undirrétti að hafa ráðist óvægilega gegn samkynhneigðum er hann lét þau orð falla í ræðu sem hann hélt í ágúst árið 2003 að “afbrigðileg hegðun samkynhneigðra væri eins og krabbamein í þjófélaginu”.

Áfrýjunarrétturinn komst hins vegar að þeirri niðurstöðu í morgun að orð hans falli ekki undir hatursáróður og að þau séu í raun ekkert grófari en það sem sagt er um samkynhneigða í Biblíunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert