Tíu handteknir vegna mótmæla við dvalarstað Terri Schiavo

Natalie Patton mótmælir við hælið þar sem Schiavo dvelur.
Natalie Patton mótmælir við hælið þar sem Schiavo dvelur. AP

Lögregla handtók þrjú börn og sjö fullorðna sem reyndu að komast með vatn inn á hælið þar sem Terri Schiavo dvelur en hún er alvarlega heilasködduð og hefur verið í dái í 15 ár. Mótmælendur höfðu safnast saman við hælið í Flórída en mál Schiavo, þar sem deilt er um hvort hún eigi að fá að deyja eða ekki, hefur vakið heimsathygli og miklar deilur.

Slanga sem veitir henni næringu var aftengd síðasta föstudag. Eiginmaður hennar vill að hún verði látin deyja en foreldrar hennar vilja að henni verði haldið á lífi og vonast til að henni geti batnað.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert