Gasárás í Rússlandi ekki hryðjuverk að mati yfirvalda

Verslun Maksikon í St. Pétursborg.
Verslun Maksikon í St. Pétursborg. Reuters

Gashylki með kveikistilli fundust í einni af verslunum Maksidom-verslanakeðjunnar í St. Pétursborg en fyrr í dag voru tugir viðskiptavina fluttir á sjúkrahús eftir að hafa andað að sér óþekktri gastegund í versluninni. Yfirvöld telja glæpamenn hafa staðið að ódæðinu en ekki hryðjuverkamenn.

„Öryggissveitir telja frekar um spellvirki að ræða því ekkert bendir til þess að þetta sé hryðjuverk,“ sagði talsmaður öryggisþjónustu rússneska ríkisins. Árásir glæpamanna á fyrirtæki í Rússlandi eru tíðar. Tuttugu létu lífið í íkveikju í borginni Ukhta í norðurhluta landsins í júlí síðastliðnum.

Talsmaður lögreglunnar greindi frá því í dag að Maksidom hefðu borist bréf þar sem hótað var röskun á verslun keðjunnar um jólin. 78 viðskiptavinir nutu læknisaðstoðar í dag en af þeim voru 66 fluttir á sjúkrahús. 50 voru sendir heim til sín skömmu síðar að skoðun lokinni og engar fréttir hafa borist af alvarlegum veikindum þeirra sem önduðu gasinu að sér.

Undarleg hvítlaukslykt var í lofti að sögn þeirra sem önduðu gasinu að sér en fyrstu fréttir hermdu að efnið hefði verið blanda kolefnis, vetnis og súlfúrs við jarðgas. Blandan væri hættuleg andaði fólk miklu af henni að sér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert