Daður á netinu endar með skilnaði

Bosnísk hjón eru að skilja í kjölfar þess að hafa fundið út að þau voru að daðra við hvort annað á netinu. Bæði voru skráð á spjallrásina undir fölskum nöfnum.

Hjónin, Sana Klaric, 27 ára, og Adnan, 32 ára , frá Zenica í Bosníu kvörtuðu bæði sáran yfir makanum í spjallinu og voru sammála um að þau hefðu fundið sálufélaga sinn á netinu. Í ljós kom að sálufélaginn var makinn ómögulegi. Ananova vefurinn greinir frá þessu.

Gekk spjall þeirra svo langt að þau höfðu ákveðið að hittast en áður en að til þess kom komust hjónakornin að hinu sanna. Nú hafa þau farið fram á skilnað og gefa bæði upp sömu ástæðu fyrir beiðninni, að hinn aðilinn hafi verið ótrúr.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert