Afganska þingið styður dauðadóm fyrir guðlast

Myndin er tekin í gamla hluta Kabúl.
Myndin er tekin í gamla hluta Kabúl. STRINGER/AFGHANISTAN

Efri deild afganska þingsins styður dauðadóm yfirafgönskum blaðamanni fyrir guðlast í norður Afganistan.  Pervez Kambaksh var dæmdur til dauða í síðustu viku fyrir að niðurhala og dreifa grein sem var talin móðga íslam.  Hann neitar sök. 
 

Sagt er frá því á fréttavef BBC að Sameinuðu þjóðirnar hafa gagnrýnt dóminn og segja blaðamanninn ekki hafa haft lögfræðiaðstoð í málinu.

Afganska öldungaráðið hefur gefið út yfirlýsingu um stuðning við dóminn og þó ekki hafi verið kosið á þinginu var yfirlýsingin undirrituð af leiðtoga þess, Sibghatullah Mojaddedi, sem er bandamaður forseta landsins Hamid Karzai.

Í yfirlýsingunni voru alþjóðlegar stofnanir einnig gagnrýndar fyrir að reyna að hafa áhrif á ríkisstjórnina og dómskerfi í landinu í málum sem þessum, en alþjóðlegar hreyfingar hafa reynt að fá dóminum snúið.

Kambaksh getur áfrýjað dóminum tvisvar og dómurinn þarf að vera samþykktur af forsetanum áður en hann er framkvæmdur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert