60 brúðkaupsgestir fórust af völdum raflosts

Að minnsta kosti 60 brúðkaupsgestir létu lífið af völdum raflosts þegar háspennustrengur féll á rútu sem fólkið var í á leiðinni í brúðkaup í norðurhluta Indlands. Hafði farangri verið hlaðið á þak bílsins og rakst hann í háspennulínu sem ekið var undir. Tveir farþegar, sem duttu út úr rútinni, komust lífs af, að sögn indverskrar fréttastofu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert