Ungverjar í forsæti í ESB
Eitt símanúmer í öllum ríkjum ESB
Neelie Kroes, sem fer með fjarskiptamál hjá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, hefur kynnt þá hugmynd að fyrirtæki geti fengið eitt símanúmar fyrir alla starfsemi innan ESB. Það myndi í reynd þýða að ekki þyrfti að slá inn landskóða við val á númeri.
ESB rýnifundi lokið
Rýnifundi um 5. kafla löggjafar ESB, Opinber útboð, lauk í Brussel í dag. Á fundinum, sem hófst í morgun, báru sérfræðingar Íslands og Evrópusambandsins saman löggjöf í þessum samningskafla en í honum er að finna reglur um gagnsæi, frjálsa samkeppni og samræmingu reglna um gerð samninga á vegum opinberra aðila. Meira
Rýnt í samningaviðræður við ESB
Rýnifundir íslenskra sérfræðinga og sérfræðinga framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins til undirbúnings samningaviðræðum um aðild Íslands að ESB hófust í Brussel í dag. Meira
Hafa ekki fallist á viðræðuramma ESB
Utanríkisráðuneyti Íslands hefur ekki fallist á viðræðuramma Evrópusambandsins sem birtur var íslenskum stjórnvöldum í júlí sl. Ráðuneytið lítur þannig á að um einhliða yfirlýsingu sé að ræða af hálfu ESB, sem bindi ekki Ísland. Þetta kemur fram á vef Evrópuvaktarinnar. Meira
Eistar undirbúa upptöku evru
Forsætisráðherra Eistlands, Andrus Ansip, segir að undirbúningur að upptöku evru gangi vel en Eistar taka upp evru á næsta ári. Hann gerir lítið úr efasemdaröddum sem telja að upptaka evru geti þýtt stóraukna verðbólgu í Eistlandi. Meira
Ísland þarf 80 ESB túlka
Fulltrúar Evrópusambandsins leggja áherslu á að Ísland muni þarfnast a.m.k. 80 ráðstefnutúlka að staðaldri ef Ísland gerist aðili að Evrópusambandinu. Svo margir ráðstefnutúlkar eru ekki til staðar nú og þjálfun þeirra tekur mörg ár. Meira
Ósáttur við hægagang hjá ESB
Forsætisráðherra Tyrklands, Recep Tayyip Erdogan, er ósáttur við það hvað aðildarumsóknarferli landsins að Evrópusambandsins gangi hægt. „Vonbrigði er of vægt til orða tekið," sagði Erdogan á sameiginlegum blaðamannafundi hans og forsætisráðherra Finnlands, Mari Kiviniemi í dag. Meira
Skiptar skoðanir um ESB komu á óvart
Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra tók í gær á móti hópi fyrrverandi Evrópuþingmanna frá samtökunum European Parliament Former Members Association. Segir í fréttatilkynningu frá ráðuneytinu að það hafi komið gestunum mjög á óvart að skiptar skoðanir væru bæði innan ríkisstjórnar og Alþingis um aðildarumsóknina. Meira
Fenginn til að vinna úttekt á EES-samningnum
Norsk yfirvöld hafa fengið Eirík Bergmann, doktor í stjórnmálafræði, til að vinna úttekt á EES-samningnum en norska ríkisstjórnin hefur ákveðið að hefja allsherjarúttekt á stöðu EES-samningsins. Meira
Össur ræðir Evrópumál í Tallin
Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra átti í dag fund með eistneskum starfsbróður sínum, Urmas Paet, í Tallinn í Eistlandi. Ráðherrarnir ræddu Evrópumál, samskipti ríkjanna og öryggis- og varnarmál. Meira
Allt um garð gengið þegar þjóðin kýs?
Við erum í inngönguferli og það verður raunverulega næstum allt afstaðið þegar við kjósum um samninginn,“ segir Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtaka Íslands. Meira
Óbreytt afstaða til ESB
Litlar líkur virðast á að tillaga um að Ísland dragi umsókn sína um aðild að Evrópusambandinu til baka verði samþykkt á Alþingi. A.m.k. sex þingmenn stjórnarandstöðunnar ætla ekki að styðja tillöguna. Meira
Styður ekki stöðvun viðræðna
Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar, mun ekki styðja tillögu um stöðvun aðildarviðræða við Evrópusambandið og telur hana í raun fráleita. Þetta kemur fram í athugasemd sem Þór hefur ritað við blogg Marðar Árnasonar, þingsmanns Samfylkingarinnar á Eyjunni. Meira
Vilja endurskoða stöðuna
„Ég skildi það þannig á flokksráðsfundinum þar sem stjórnarsáttmálinn var samþykktur og þetta mál kom upp, að það væri bara verið að athuga hvað væri í boði og það yrði síðan borið undir þjóðina og eftir að það hefði verið gert yrði þetta ferli hafið.“ Meira
Telur að um misskilning sé að ræða
Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, segist telja að um misskilning sé að ræða hjá Jóni Bjarnasyni, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, um að aðlögunarferlið að Evrópusambandinu sé hafið. Hann segir að þetta verði hins vegar að skoða frekar. Meira
Tillögur um aukna neytendavernd
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur lagt fram tillögur til að auka neytendavernd og tiltrú almennings á fjármálaþjónustu, að því er fram kemur á vef Neytendastofu. Lúta tillögurnar að breytingum á löggjöf Evrópusambandsins sem miða að því að auka vernd innistæðueigenda og smárra fjárfesta. Meira
Óska eftir ESB umræðu í þingnefnd
Þingmenn Sjálfstæðisflokksins í sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd, Einar K. Guðfinnsson og Jón Gunnarsson, hafa óskað eftir því að á næsta fundi nefndarinnar verði rætt um þætti er snúa að aðildarumsókn að Evrópusambandinu. Meira
Kominn tími til að segja stopp
Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, segir erfitt að túlka minnisblað ráðuneytisstjóra um stöðuna í undirbúningi fyrir ESB-aðildarviðræður um landbúnað á annan hátt en að aðlögunarferli Íslands að Evrópusambandinu sé hafið. Meira
Lítill áhugi Íslendinga vekur athygli
Evrópskir stjórnmálamenn og blaðamenn sem hafa komið til Íslands undanfarna mánuði undrast hversu lítill áhugi Íslendinga og íslenskra þingmanna er á inngöngu í Evrópusambandið. Kemur fram í vefritinu EUTimes að Íslendingar hafi engan áhuga á að ganga inn í ESB og hafi aldrei átt að sækja um aðild. Meira
Gætu „tekið Noreg á þetta"
Norska dagblaðið Aftenposten fjallar í dag um aðildarviðræður Íslendinga við Evrópusambandið Þar segir að í Brussel óttist stjórnmálamennirnir að sagan af aðildarviðræðum Noregs endurtaki sig. Samningurinn verði felldur í þjóðaratkvæðagreiðslu eins og Norðmenn gerðu 1972 og 1994. Meira
Ungir Evrópusinnar svara Ísafold
Stjórn Ungra Evrópusinna hefur sent opið bréf til Ísafoldar, félagi ungs fólks gegn ESB, þar sem gerðar eru athugasemdir við bréf sem Ísafold sendi til þingmanna þar sem stjórn Ísafoldar hvetur þá til að falla frá umsókn Íslands að ESB. Bréf Ísafoldar birtist á mbl.is í gær. Meira
Formaður LÍÚ: Ummæli slitin úr samhengi
Adolf Guðmundsson, formaður LÍÚ, hefur sent frá sér athugasemd þar sem fram kemur að ummæli hans um Evrópusambandið hafi verið slitin úr samhengi í fréttum RÚV fyrr í vikunni. Hann vill árétta að engin breyting hafi orðið á afstöðu LÍÚ til aðildar að Evrópusambandinu. Meira
Segja stjórnvöld eiga að standa með Íslandi
„Ég tek bara undir með formanni Sjálfstæðisflokksins í þessu. Þetta eru upplýsingar sem þarf að skoða. Ég er sannfærð um það að þetta getur ekki annað en styrkt okkar málstað,“ segir Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins. Meira
„Verðum að reyna að ná góðum samningi“
Adolf Guðmundsson, formaður LÍÚ, telur að fyrst ríkisstjórnin ætli ekki að draga umsókn um aðild Íslands að ESB til baka verði að leggja alla áhersla á að reyna að ná eins góðum samningi og mögulegt er. Meira
Harma samþykkt landsfundar um ESB
Sjálfstæðir Evrópumenn harma samþykkt landsfundar Sjálfstæðisflokksins um Evrópumál. Segja þeir hana fela í sér áhrifaleysi flokksins í einhverjum mikilvægustu samningum sem Ísland hefur gengið til á þýðingarmesta tíma samningagerðarinnar. Þetta kemur fram í ályktun sem samþykkt var á fundi samtakanna í dag. Meira
ESB styrkir verkefni Matís
Matís mun stýra tveimur nýjum fjölþjóðaverkefnum sem Evrópusambandið hefur ákveðið að styrkja til þriggja ára, EcoFishMan og AMYLOMICS. Styrkir ESB hljóða upp á alls 5,5 milljónir evra, jafnvirði um 860 milljóna króna. Þar af er hlutur Matís 950.000 evrur til beggja verkefna, jafnvirði um 150 milljóna króna. Meira
Ungir framsóknarmenn vilja ESB viðræður
Stjórn Alfreðs, félags ungra framsóknarmanna í Reykjavík, telur að mikilvægt sé að aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið fái þann lýðræðislega farveg sem hófst með ályktun Alþingis um aðildarviðræðurnar. Meira
Þrengir ekki stöðu Sjálfstæðisflokksins
Einar K. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hafnar því á heimasíðu sinni í dag að flokkurinn hafi með ályktun sinni um Evrópumál um helgina þrengt stöðu sína eða vísað einhverjum á dyr sem hafi önnur sjónarmið. Meira
Víglínur skýrast gagnvart ESB
Landsfundur Sjálfstæðisflokksins samþykkti stjórnmálaályktun um helgina þar sem afdráttarlaus afstaða er tekin gegn aðild Íslands að Evrópusambandinu. Í ályktuninni segir að Sjálfstæðisflokkurinn geri þá skýru kröfu að umsókn um aðild Íslands að ESB verði dregin til baka án tafar. Meira
ESB-aðildarsinnar héldu illa á málstað sínum
Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra Sjálfstæðisflokksins, segir að Evrópusambands-aðildarsinnar hafi haldið illa á málstað sínum á landsfundi Sjálfstæðisflokksins. Það hafi átt sinn þátt í því, að niðurstaða fundarins varð þeim öndverð. Þetta kemur fram á vef Björns. Meira
Vilja draga umsókn til baka
Landsfundur Sjálfstæðisflokksins samþykkti rétt í þessu að bæta við stjórnmálaályktun fundarins að flokkurinn krefjist þess að umsókn um aðild þjóðarinnar að Evrópusambandinu verði dregin til baka. Meira
Gagnger endurskoðun á umsókn
Í samþykktum ályktunum flokksráðsfundar Vinstri grænna kemur m.a. fram að flokkurinn hyggst ræða aðildarumsóknina á sérstöku málefnaþingi næsta haust. Segir í ályktuninni að „forsendur ESB umsóknar [séu] breyttar og í því ljósi [sé] mikilvægt að málið verði tekið til gagngerrar endurskoðunar.“ Meira
Óvíst hvort annað tækifæri gefist
Jóhanna Sigurðardóttir, formaður Samfylkingarinnar og forsætisráðherra, segir að framundan sé umsóknarferlið um Evrópusambandið, baráttumál jafnaðarmanna um áratugi sem þurfi að nýta vel. „Mistakist okkur í þessu ferli núna er allsendis óvíst hvort og þá hvenær næsta tækifæri kemur." Meira
Þjóðin hefur síðasta orðið
Jóhanna Sigurðardóttir, formaður Samfylkingarinnar og forsætisráðherra, segir að tuttugu ára baráttumáli jafnaðarmanna um aðildarviðræður að Evrópusambandinu séu orðið að veruleika. Hún segist trúa því að aðild hafi hagsæld áhrif á land og þjóð. Það sé hins vegar þjóðarinnar hafa þar síðasta orðið. Meira
Evrópumálin holgrafa flokkinn
Hart var deilt á Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og aðildarumsókn Íslendinga að Evrópusambandinu í almennum stjórnmálaumræðum í morgun á flokksráðsfundi Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs. Meira
Leggja aðildarumsókn til hliðar
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir rétt við núverandi aðstæður að leggja aðildarumsókn að Evrópusambandinu til hliðar. Ekki bara vegna hótana Breta heldur sé líka mikilvægt að nýta alla okkar krafta til að sigrast á þeim efnahagserfiðleikum sem við er að glíma, sagði Bjarni við setningu landsfundar Sjálfstæðisflokksins. Meira
SUS vill draga umsókn til baka
Samband ungra sjálfstæðismanna skorar á stjórnvöld að draga umsókn Íslands um aðilda að Evrópusambandinu til baka sem fyrst. Þetta kemur fram í ályktun sem sambandið samþykkti í gær. Meira
Sjálfstæðismenn ræða Evrópumál
Aukalandsfundur Sjálfstæðisflokksins, sem haldinn verður um næstu helgi, mun taka afstöðu til þess hvort flokkurinn leggi til að aðildarumsókn að Evrópusambandinu verði dregin til baka, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Allar líkur eru á að slík tillaga verði samþykkt. Meira
Úr umsóknarferli í viðræðuferli
Með ákvörðun leiðtogaráðsins að hefja viðræður við Ísland um aðild að Evrópusambandinu færist Ísland úr umsóknarferli yfir í viðræðuferli. ESB mun á næstu vikum vinna að samningsramma um skipulag fyrirhugaðra viðræðna sem öll aðildarríkin þurfa að samþykkja. Því næst fer fram ríkjaráðstefna þar sem Ísland og ESB munu formlega hleypa viðræðum af stokkunum. Meira
Samþykkt að hefja viðræður
Leiðtogar Evrópusambandsins samþykktu á fundi sínum í dag að hefja viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu, innan við ári frá því Ísland óskaði eftir því. AFP fréttastofan hefur eftir heimildum af leiðtogafundinum að viðræðurnar hafi verið samþykktar nú rétt fyrir hádegið. Meira
Opinberar skuldir ofarlega á baugi
Opinberar skuldir aðildarríkja Evrópusambandsins verða ofarlega á baugi á leiðtogafundi Evrópusambandsins í dag. Fastlega er gert ráð fyrir því að leiðtogarnir greiði atkvæði um hvort hefja eigi viðræður um aðild Íslands að bandalaginu fyrir hádegi. Allar líkur eru á að það verði samþykkt. Meira
Heimssýn fagnar þingsályktunartillögu
Framkvæmdastjórn Heimssýnar, hreyfingar sjálfstæðissinna í Evrópumálum, fagnar tillögu að þingsályktun sem lögð var fram í dag um að Ísland dragi tilbaka umsókn um aðild að Evrópusambandinu. Engar haldbærar forsendur eru fyrir umsókninni, hvorki á Alþingi né meðal þjóðarinnar, segir í ályktun framkvæmdastjórnarinnar. Meðal flutningsmanna tillögunnar er formaður stjórnar Heimssýnar, Ásmundur Einar Daðason. Meira
Mun lýðræðiskrafan efla valdið í Brussel?
Þeir sem vilja efla samvinnu Evrópuþjóða innan Evrópusambandsins vilja að næsti forseti ráðherraráðs Evrópusambandsins verði kosinn í lýðræðislegri atkvæðagreiðslu. Meira
Þýðingar komnar á netið
Í samræmi við ákvörðun Jóns Bjarnasonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hafa verið þýddar yfir á íslensku spurningar Evrópusambandsins og svör ráðuneytisins við þeim um sjávarútveg í tengslum við aðildarumsókn Íslands að ESB. Meira
Umsókn Íslands jafnvel tekin fyrir í júní
Leiðtogar Evrópusambandsríkjanna munu jafnvel taka aðildarumsókn Íslands fyrir á fundi sínum í júní og ákveða um hvort formlegar viðræður verða teknar upp, samkvæmt upplýsingum frá spænskum stjórnvöldum sem fara með forsæti í framkvæmdastjórn ESB. Meira
Standa ekki veginum fyrir aðildarviðræðum
Hollendingar munu ekki koma í veg fyrir að Evrópusambandið hefji viðræður við Ísland um aðild að sambandinu þrátt fyrir Icesave-deiluna. Þetta hefur hollenska fréttastofan ANP eftir utanríkisráðherra Hollands, Maxime Verhagen, í gær. Reuters fréttastofan vísar til ummæla ráðherrans fyrir tveimur vikum þar sem hann sagði að Icesave myndi hafa áhrif á aðildarumsókn Íslands að ESB. Meira
Ekki leyst í tæknilegum viðræðum
Álit Framkvæmdastjórnar ESB á aðildarumsókn Íslands var til umfjöllunar á fundi sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar Alþingis í fyrradag að ósk Einars K. Guðfinnssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins. Meira
Ísland á hliðarlínunni
Ekki verður fjallað um umsókn Íslendinga að Evrópusambandinu á leiðtogafundi Evrópusambandsins sem verður haldinn á fimmtudag og föstudag í næstu viku, samkvæmt frétt norska blaðsins ABC Nyheter. Meira
Vilja aðildarviðræður þrátt fyrir Icesave
Flestir þingmenn sem sitja í utanríkismálanefnd Evrópuþingsins vilja að Evrópuráðið ákveði á fundi sínum síðar í mánuðinum að hefja aðildarviðræður við Íslands. Skipti þar engu þær deilur sem tvö aðildarríki Evrópusambandsins, Bretland og Holland eigi við Íslendinga vegna Icesave. Meira
Leggst eindregið gegn viðræðum við Ísland
Einn helsti Evrópusérfræðingur franska dagblaðsins Liberation, Jean Quatremer, leggst eindregið gegn því að gengið sé til Evrópusambandsviðræðna við Ísland og hvetur til þess að leiðtogaráðið hafi ráð framkvæmdastjórnarinnar um viðræður við Ísland að engu. Quatremer skrifar á vef sinn Coulisses de Bruxelles að Ísland sé ekki tilbúið til þess að verða aðili að ESB. Meira
Finna ESB flest til foráttu
Íslendingar finna Evrópusambandinu flest til foráttu ef marka má frétt Reuters. Þar kemur fram að þegar kemur að sjávarútvegi þá telji Íslendingar að séu afskiptin of mikil en þegar kemur að skuldadeilu líkt og Icesave og stöðu ríkissjóðs Grikklands þá telji þeir að ekki sé nóg gert. Þetta þýði að Ísland, sem hafi margar góðar ástæður fyrir inngöngu í ESB, sýni lítinn áhuga nú. Meira
Ísland vinni heimavinnuna sína
Þingmenn austurríska þjóðarflokksins og austurríska sósíaldemókrataflokksins voru gagnrýnir í umræðum á Evrópuþinginu í dag um væntanlegar aðildarviðræður Íslands og við Evrópusambandið. Meira
CNBC: Augljóst að Ísland getur ekki borgað
Stjórnandi þáttarins Strictly Money á sjónvarpsstöðinni CNBC og þeir sem komu fram í þættinum í gær voru sammála um að Íslendingar geti ekki greitt Bretum og Hollendingum til baka á þeim afarkjörum sem þeim standa til boða. Krafan sé Bretum til skammar og ekki bara það heldur hafi bresk yfirvöld aldrei átt að heimila starfsemi íslensku bankanna í Bretlandi. Meira
Samfylkingin hunsaði fund Evrópunefndar Búnaðarþings
Samfylkingin sá ekki ástæðu til að senda fulltrúa sína til fundar við Evrópunefnd Búnaðarþings sem hefur starfað síðustu tvo daga. Þetta kemur fram á vef Bændasamtaka Íslands. Meira
Maraþonfundir í Brussel gætu hafist síðla í haust
Viðbrögð við ítarlegri greiningarskýrslu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um stöðu Íslands gagnvart aðild að sambandinu falla í gamalkunnan farveg. Meira
Umsókn Íslendinga rædd í dag
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins mun væntanlega samþykkja umsókn Íslendinga um að hefja aðildarviðræður í dag. Þetta kemur fram á vef írska sjónvarpsins, RTE News. Er þess vænst að samþykki ESB verði staðfest fyrir hádegi en viðræður Íslendinga og ESB gætu tekið langan tíma og reynst erfiðar. Meira
Ísland og Evrópusambandið
- Evrópusambandið - almennt
- Evrópusambandið
4. jan. - EES samningurinn
5. jan. - Landbúnaður
6. jan. - Gjaldmiðillinn
7. jan. - Finnland
8. jan. - Stjórnkerfi og stofnanir
9. jan.
- Orka og auðlindir
10. jan. - Sjávarútvegur
11. jan. - Umhverfismál
12. jan. - Utanríkis- og öryggismál
13. jan. - Umsóknarferlið
14. jan. - Mannréttindi
15. jan. - Danmörk og evran
18. apr.
Sjónvarp
-
Telur að um misskilning sé að ræða
Steingrímur J Horfa
-
Össur: „Diplómatískur sigur“
„Ég er auðvitað ákaflega glaður og hamingjusamur með það að utanríkisráðherrarnir skuli hafa afgreitt þetta í dag. Það er diplómatískur sigur fyrir okkur Íslendinga Horfa
-
Leyfir mönnum að kæla sig
Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra telur að málin hafi þróast Íslendingum í vil innan Evrópusambandsins og hann segist vera bjartsýnn á að við fáum að halda okkar hlut hvað auð Horfa
-
Fjölþætt sannfæring
Svandís Svavarsdóttir þingmaður VG segist hafa kosið samkvæmt sannfæringu sinni í kosningunni um aðildarumsókn að Evrópusambandinu í dag og vísar á bug ásökunum um svipuhögg og fle Horfa
-
Blendnar tilfinningar
Steingrímur J. Sigfússon sagði að það bærðust blendnar tilfinningar í hans brjósti að lokinni kosningu þar sem hann studdi þá tillögu að farið yrði í aðildarviðræður við ESB Horfa
Nýjustu skýringarmyndir
Mikilvæg ártöl
Rúm sextíu ár eru frá undirritun Mannréttindayfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna. Með samþykkt Lissabon-sáttmálans verður stigið stórt skref í átt til samræmdrar mannréttindastefnu í Evrópu.
Skoðanir Evrópubúa í ESB haust 2008
Forvitnilegt er að grennslast fyrir um skoðanir Evrópubúa, en framkvæmdastjórn ESB stendur reglulega fyrir skoðanakönnun meðal íbúa aðildarríkja sambandsins.
Mögulegur tímarammi aðildarumsóknar
Ýmsar vangaveltur eru uppi um hversu langan tíma það tæki fyrir Ísland að fá aðild að ESB. Hér eru drög í þá veru, sem bárust í hendur blaðamanns.
Yfirlit yfir aðgerðir ESB á sviði utanríkis- og öryggismála
ESB hefur einkum sinnt borgaralegum verkefnum á sviði utanríkis- og öryggismála. Smám saman hefur hernaðarlegum verkefnum fjölgað, það nýjasta snýst um baráttu gegn sómölskum sjóræningjum. Verkefnin snúast um friðargæslu og uppbyggingu. ESB er ekki hernaðar- eða varnarbandalag.
Skoðanir annarra
Hvers vegna sögðu Norðmenn NEI?
Frændur okkar Norðmenn hafa tvívegis efnt til þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild að Evrópusambandinu, ESB, (áður Evrópubandalaginu), árin 1972 og 1992 Meira
“Kreppan” og ESB
BANKAHRUNIÐ og stöðvun útlána hefur sett stórt strik í fjárfestingarfyllirí landsmanna. Óraunhæft og brjálæðislegt húsnæðisverð hefur sigið á höfuðborgarsvæðinu og á eftir að síga enn Meira
Evrópusamstarf sparar vinnu og peninga
Þátttaka í Evrópusamstarfi hefur sparað íslensku stjórnsýsluna umtalsverða vinnu og fjármuni við mótun löggjafar, t.d. á sviði umhverfismála. Meira
Kæru landsfundarmenn
Aðildarumsókn í ESB er draumur samfylkingar. Sjálfstæðismenn hafa fram að þessu ekki deilt þessum draumi. Meira
Athugasemd við grein 32 hagfræðinga
Á ÍSLANDI fara nú fram mikilvægar umræður um framtíðarskipan gjaldeyrismála. Ég hef fengið tækifæri til að fylgjast lítillega með því sem rætt hefur verið og ritað Meira
Örlög Íslands öruggust í höndum Íslendinga
Íslenskar tilfinningar munu aldrei þola forsjá annarra þjóða Meira
Efnahagsleg- og pólitísk staða Íslands
Ísland og íslendingar hafa fundið á eigin skinni hvernig það er að vera einir og hálf umkomulausir í samfélagi þjóðanna síðast liðna mánuði Meira
Hvert yrði vægi Íslands innan ESB?
Því er gjarnan haldið fram af þeim sem vilja ganga í Evrópusambandið að innlimun í sambandið sé nauðsynleg til þess að við getum haft áhrif innan þess Meira
Einhliða upptaka er lausn á gjaldeyrisvanda
Upptaka evru með inngöngu í ESB tæki of langan tíma, a.m.k. fimm ár. Því ber að íhuga vandlega einhliða upptöku gjaldmiðilsins. Meira
Eru aðildarviðræður nauðsynlegar til að kanna hvað ESB hefur upp á að bjóða?
Staðreyndin er sú að allir sem vilja geta séð hvað ESB hefur upp á að bjóða. Til þess þarf ekki aðildarviðræður. Meira
Á evrusvæðið framtíðina fyrir sér?
Tilkoma evrunnar var fyrst og fremst hugsuð sem stórt samrunaskref innan Evrópusambandsins. Tilgangurinn var öðru fremur pólitískur en ekki efnahagslegur, þ.e Meira
Einhliða upptaka evru er engin töfralausn
Íslendingar glíma nú við afleiðingar gjaldeyris- og fjármálakreppu. Gjaldeyriskreppan er í raun enn óleyst en úrlausn hennar slegið á frest með upptöku hafta á fjármagnsviðskiptum Meira
Er EES-samningurinn orðinn úreltur?
Ekkert bendir til þess að samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið (EES) sé orðinn úreltur þó ýmsir hafi vissulega orðið til þess í gegnum tíðina að halda því fram Meira
EES felur ekki í sér hefðbundið neitunarvald
EES-samningurinn felur ekki í sér neiturnarvald miðað við hefðbundnar skilgreiningar á neitunarvaldi ríkja innan alþjóðastofnanna. Meira
Fullveldi og framsal valdheimilda: Samanburður á ESB og EES
Hér verður leitast við að skýra hvernig álitaefni um framsal ríkisvalds (fullveldis) og þörf fyrir breytingu á stjórnarskrá horfa við með ólíkum hætti gagnvart Evrópusambandinu (ESB) og Evrópska efnah Meira
Getum við rekið þá?
Getum við rekið þá sem stjórna landinu okkar? Þetta er alger grundvallarspurning þegar rætt er um lýðræðið. Meira
ESB-aðild, evra og atvinnuleysi
Þrautalendingin til að fullnægja evru-skilyrðum yrði aukið atvinnuleysi langt yfir þau mörk sem hér hafa ríkt eða talist ásættanleg undanfarna áratugi Meira
Samstaða um Evrópu
Þess vegna er lykilatriði að fulltrúar allra stjórnmálaflokka, jafnt þeirra sem eru hlynntir aðild og mótfallnir komi að mótun samningsmarkmiðanna. Meira
Erum við skák og mát ? Átt þú ekki næsta leik?
Á NÝBYRJUÐU ári velta margir því fyrir sér, hverra kosta er völ fyrir lýðveldið Ísland í kjölfar bankahrunsins mikla. Hverjum er um að kenna? Meira
Fagna liðsinni formanns LÍÚ
Evrópusambandsaðild og upptaka evru er raunhæf leið sem getur aðstoðað okkur að halda uppi samkeppnishæfi þjóðarinnar. Meira
Gegn umsókn í ESB á Landsfundi Sjálfstæðisflokksins
Fulltrúar á Landsfundi eiga ekki, nauðbeygðir af áróðri ESB-trúarspekinga, að samþykkja umsókn í Evrópusambandið. Meira
Áskorun til Íslendinga
Innganga í ESB fæli í sér algera örvæntingu, rétt eins og raunin var í tilfelli okkar Breta. Meira
Góðir íslendingar, er EBS lausn?
SKÚLI Thoroddsen ritar athyglisverða grein í Morgunblaðið þann 14. des sl. Lokaorð greinarinnar eru; „að ekkert sé að óttast þó að af aðild Íslands verði….“ Hvar er þá fullveldi Íslands komið? Meira
Tengt efni
Stofnanir ESB og Lissabon-sáttmálinn
- Í skýrslu evrópunefndar forsætisráðherra frá 2007 er samantekt um stofnanir og ákvarðanatökuferli ESB á bls. 21-25.
- Umfjöllun um Lissabon-sáttmálann á vef fastanefndar ESB gagnvart Íslandi og Noregi
- Umfjöllun á vef Evrópunefndar Sjálfstæðisflokksins um Lissabon-sáttmálann
- Spurningar og svör um Lissabon-sáttmálann á vef BBC (á ensku)
- Vefur stjórnvalda á Írlandi um Lissabon-sáttmálann (á ensku)
- Sósíalíski verkamannaflokkurinn á Írlandi var meðal þeirra sem barðist gegn Lissabon-sáttmálanum (á ensku)
- Á vef BBC er ítarleg umfjöllun um flest sem snertir ESB (á ensku)
- Umfjöllun um stofnanakerfi ESB á vef ESB (á ensku)
- Fjöldi starfsmanna ESB (á ensku)
Utanríkis- og öryggismál
- Greinargerð sérfræðings hjá utanríkisráðuneytinu um utanríkis- og öryggismálastefnu ESB
- Skýrsla utanríkisráðherra frá 2007 um Evrópumál. Á bls. 31 er umfjöllun um utanríkismál
- Vefur fulltrúadeildar Bandaríkjaþings um kosningar hjá Sameinuðu þjóðunum. Upplýsingar um Ísland eru undir Country voting pracices. (á ensku)
EES og ESB
- EES-vefur utanríkisráðuneytisins
- Vefur EFTA (Fríverslunarsamtaka Evrópu) um Evrópska efnahagssvæðið (á ensku)
- Hvað breytist raunverulega við aðild að ESB, spyr og svarar Eiríkur Bergmann Einarsson, dósent við Háskólann á Bifröst
- Guðmundur Hálfdanarson, sagnfræðiprófessor við HÍ, skrifar um hvort fullveldið glatist við inngöngu í ESB.
Evrópusambandið
Ísland í ESB?
Spurningar og svör um ESB










