

Burkini er framleitt í Ástralíu og þykir einkar hentugt fyrir múslimskar konur sem vilja bæði strandlíf en líka hefðir.
Sala á strandklæðnaði fyrir múslimskar konur rýkur upp
Bloggað um fréttina
-
Ísleifur Egill HjaltasonSmá Sögulegt Rýni
Sala á svokölluðum burkinis hefur tekið mikinn kipp undanfarið. Nafnið burkini er samsett úr orðunum bikini og burka. Flíkin þekur allan kroppinn en andlit, hendur og fætur sjást. Þetta kemur fram á vef Berlingske Tidende.
Frá því að byrjað var að selja flíkina í Danmörku hafa selst um hundrað stykki og kostar hún nálægt 1.000 dönskum krónum eða um 16.400 íslenskar.
Markhópur burkini er múslimskar konur sem bæði vilja halda í siði og venjur en líka spóka sig á ströndinni og stunda íþróttir.
Aðal munurinn á burkini og öðrum íþróttafatnaði fyrir múslimskar konur er efnið sem er notað en það er teygjuefnið lycra.
Til baka








Senda inn efni

