[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
blog.is

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Víkingalottó

Víkingalottó 28.7.10
5 8 24 26 29 44
43 46   9
Jóker
9 6 0 2 3  
Fjórfaldur fyrsti vinningur næst
Birt án ábyrgðar
Fátækt

Fasteignir:
mest skoðað

Stigahlíð, 105 Reykjavík Stigahlíð Reykjavík
Sogavegur, 108 Reykjavík Sogavegur Reykjavík
Valhúsabraut, 170 Seltjarnarnes Valhúsabraut Seltjarnarnes
Fjallalind, 201 Kópavogur Fjallalind Kópavogur
Álfheimar, 104 Reykjavík Álfheimar Reykjavík
Sumarhús   Öndverðarnesi, 801 Selfoss (dreifbýli) Sumarhús Öndverðarnesi Selfoss (dreifbýli)
Fífulind, 201 Kópavogur Fífulind Kópavogur
Laugagerði, 650 Laugar Laugagerði Laugar
Brekkuhjalli, 200 Kópavogur Brekkuhjalli Kópavogur
Fagraþing , 203 Kópavogur Fagraþing Kópavogur

Reuters

Tækni & vísindi | AFP | 13.8.2008 | 11:25

Hr. Rangur valinn vegna pillunnar

Bloggað um fréttina

Getnaðarvarnapillur sem milljónir kvenna um heim allan nota geta raskað náttúrulegum hæfileikum til þess að þefa uppi heppilegan maka.

Þetta kemur fram í rannsókn sem birt var í dag.

Venjulega dragast konur að karlmönnum sem eru ólíkir þeim erfðafræðilega séð með hjálp lyktarskynsins.

Ef fólk er of líkt að erfðum getur það átt í erfiðleikum með getnað, hætta á fósturláti eykst og ónæmiskerfi barnanna getur orðið veikara.

Hópur um það bil 140 arfbera á svæði sem kallað er MHC (Major Histocompatibility Complex) og sem hjálpar við að mynda prótein sem koma að ónæmisvörnum líkamans, er líka mikilvægur þáttur af lykt með samskiptum við húðbakteríur.

Það hvernig þessir arfberar gera vart við sig getur hjálpað við að ákvarða hverjum finnst við vera aðlaðandi þegar þeir elta nef sitt óafvitandi.

Það var Craig Roberts við Háskólann í Newcastle sem sem leiddi rannsókn á því hvort getnaðarvarnapillur hefðu áhrif á aðdráttarfl lyktar.

Eitt hundrað konur voru beðnar um að meta hvaða karlmannslykt þeim þætti mest aðlaðandi, bæði fyrir og eftir að þær fóru á pilluna.

Lyktarprufurnar voru fengnar frá 97 sjálfboðaliðum.

„Niðurstöður leiddu í ljós að smekkur kvenna sem byrjaði á pillunni breyttist og hneigðist frekar til þeirra sem voru líkari þeim að erfðum,“ segir Roberts.

Þá kemur þar fram að pillan getur ekki aðeins orðið þess valdandi að konur velji frekar Hr Rangan heldur getur hún líka valdið usla í samböndum.

„Þetta gæti valdið því að sambönd leysast upp þegar konan hættir á pillunni þar sem lyktarskynið er mjög mikilvægur liður í aðdráttarafli maka,“ segir hann.

Í pillunni eru tvö hormón, prógestogen og estrógen, sem halda frjósemi kvenna niðri.

Rannsóknin var birt í breska ritinu Proceedings of the Royal Society B: Biological Science.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Tækni & vísindi — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær
Miðvikudaginn 28. júlí
Þriðjudaginn 27. júlí
Mánudaginn 26. júlí
Laugardaginn 24. júlí
Fimmtudaginn 22. júlí
Miðvikudaginn 21. júlí
Þriðjudaginn 20. júlí
Mánudaginn 19. júlí
Sunnudaginn 18. júlí
Föstudaginn 16. júlí
Fimmtudaginn 15. júlí
Þriðjudaginn 13. júlí
Mánudaginn 12. júlí
Föstudaginn 9. júlí
Fimmtudaginn 8. júlí
Miðvikudaginn 7. júlí
Þriðjudaginn 6. júlí
Mánudaginn 5. júlí
Föstudaginn 2. júlí
Fimmtudaginn 1. júlí