[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Lottó

Lottó  6.2.2010
2 16 20 30 33 14
Jóker
5 4 6 0 5  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Lækjarvað, 110 Reykjavík Lækjarvað Reykjavík
Álftröð, 200 Kópavogur Álftröð Kópavogur
Sæviðarsund, 104 Reykjavík Sæviðarsund Reykjavík
Tómasarhagi, 107 Reykjavík Tómasarhagi Reykjavík
Ólafsgeisli, 113 Reykjavík Ólafsgeisli Reykjavík
Sumarhús Hallkelshólar, 801 Selfoss (dreifbýli) Sumarhús Hallkelshólar Selfoss (dreifbýli)
Kirkjuvellir, 220 Hafnarfjörður Kirkjuvellir Hafnarfjörður
Leynir Kaldakinn Lóð, 801 Selfoss (dreifbýli) Leynir Kaldakinn Lóð Selfoss (dreifbýli)
Vesturgata, 101 Reykjavík Vesturgata Reykjavík
Hringbraut, 107 Reykjavík Hringbraut Reykjavík
Hákon krónprins Noregs og Mette-Marit prinsessa.

Hákon krónprins Noregs og Mette-Marit prinsessa.

Viðskipti | mbl.is | 4.11.2009 | 13:09

Réði bróður norsku krónprinsessunnar

Norðmaðurinn Bjørn Richard Johansen, sem var um tíma framkvæmdastjóri hjá Glitni og ráðgjafi íslenskra stjórnvalda eftir bankahrunið sl. haust, stendur í stórræðum þessa dagana en hann er nú stjórnarformaður  almannatengslafyrirtækisins First House.

Ein helsta frétt norskra fjölmiðla í dag er að Johansen hafi ráðið Per Høiby, bróður norsku krónprinsessunar Mette-Marit, sem framkvæmdastjóra. Ráðið hefur verið í ýmsar yfirmannsstöður hjá First House að undanförnu og hafa þær ráðningar vakið athygli.

Johansen var um tíma framkvæmdastjóri samskiptasviðs Glitnis. Þá fékk Geir H. Haarde, þáverandi forsætisráðherra, hann sl. haust til að aðstoða sig í samskiptum við erlenda fjölmiðla.

First House segir í tilkynningu að fyrirtækið muni taka að sér verkefni við  krísustjórnun hjá fyrirtækjum sem lenda í áföllum af hverskonar tagi. Það verði í samvinnu við samskonar fyrirtæki á Íslandi, í Svíþjóð, Finnlandi og Danmörku. 

 

Fara til baka Til baka

 

Viðskipti — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær
Sunnudaginn 7. febrúar
Laugardaginn 6. febrúar
Föstudaginn 5. febrúar