[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Lottó

Lottó  13.3.2010
6 8 10 22 37 7
Jóker
2 1 5 7 8  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Ægisgata, 101 Reykjavík Ægisgata Reykjavík
Lambafell, 861 Hvolsvöllur (dreifbýli) Lambafell Hvolsvöllur (dreifbýli)
Tungusel, 109 Reykjavík Tungusel Reykjavík
Álftröð, 200 Kópavogur Álftröð Kópavogur
Laugateigur, 105 Reykjavík Laugateigur Reykjavík
Langalína, 210 Garðabær Langalína Garðabær
Njálsgata, 101 Reykjavík Njálsgata Reykjavík
Laugavegur, 101 Reykjavík Laugavegur Reykjavík
Ásbraut, 200 Kópavogur Ásbraut Kópavogur
Dalbraut, 105 Reykjavík Dalbraut Reykjavík
Bandarískir lögreglumenn að störfum. Myndin tengist fréttinni ekki beint.

Bandarískir lögreglumenn að störfum. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Reuters

Innlent | mbl.is | 5.11.2009 | 07:00

Íslensk kona á flótta í Bandaríkjunum

Lögregla í borginni Plattsburgh í New York ríki gerði mikla leit að íslenskri konu sem flúði úr gæsluvarðhaldi í gær. Konan beið þess að verða leidd fyrir dómara þegar hún flúði. Það gerði hún með því að segjast þurfa að fara á klósettið en flúði þess í stað.

Lögreglan í borginni, ríkinu og í ríkisháskólanum leituðu að konunni, sem er 42 ára gömul. Hún var handtekin af alríkislögreglumönnum sem ólöglegur innflytjandi, samkvæmt fréttatilkynningu, eftir að hafa framið einhvers konar lögbrot þegar hún kom inn í landið, í gegnum landmærin við Kanada.

Konan er ekki talin hættuleg á neinn hátt, en lögregla hefur gefið út lýsingu á henni vegna leitarinnar. Greint er frá þessu á fréttavefnum PressRepublican.com

Lögreglan lokaði götum í kringum stjórnarbyggingar í borginni og notaði þyrlu til að leita, en þyrlan er í eigu heimavarnarráðuneytisins. Leit var gerð á mörgum svæðum í borginni, meðal annars nálægt helstu ánni sem rennur í gegnum hana. Leitin hélt áfram fram á kvöld og nótt en ekki var búið að hafa uppi á konunni þá.

Frétt PressRepublican.com

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær
Laugardaginn 13. mars