Ákveðið að stofna Framtakssjóð Íslands
Bloggað um fréttina
-
Lúðvík LúðvíkssonHRUNSTJÓRAR
-
Erling Garðar JónassonFramtakssjóður Íslands verður stofnaður 24.
Hrafn Magnússon, framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða, skýrði frá því á ráðstefnu um fjárfestingar í dag, að ákveðið hafi verið að halda stofnfund Framtakssjóðs Íslands 24. nóvember.
Sjóðurinn hefur verið í undirbúningi á vegum Landssamtaka lífeyrissjóða um nokkra hríð og hefur verið leitað eftir fjárfestingaloforðum að fjárhæð 75 milljarðar króna, sem verða innkölluð á árunum 2010 til 2012. Hrafn sagði, að á þessari stundu sé ekki vitað hversu stór sjóðurinn verður, því lífeyrissjóðirnir hafi ráðrúm til 20. nóvember n.k. að tilkynna um þátttöku sína að sjóðnum og um fjárfestingaloforð.
Hrafn sagði, að á stofnfundinum verði kosin stjórn sjóðsins, sem síðan mun auglýsa eftir framkvæmdastjóra. Hlutverk Framtakssjóðs Íslands verður að taka þátt í og móta fjárhagslega og rekstrarlega endurreisn íslensks atvinnulífs í kjölfar falls fjármálakerfisins.
Sjóðurinn mun fjárfesta í íslenskum fyrirtækjum í öllum atvinnugreinum, einkum þeim fyrirtækjum sem lent hafa í fjárhagserfiðleikum vegna yfirstandandi þrenginga en eiga sér vænlegan rekstrargrundvöll. Fyrirtæki sem afla gjaldeyristekna eða spara gjaldeyri með starfsemi sinni eru sérstaklega áhugaverð í þessu sambandi.
„Ljóst er að staðan í íslensku viðskiptalífi kallar á nýtt fjármagn til að gera fyrirtækjum sem nú eiga við fjárhagslega erfiðleika kleift að komast í gegnum erfiðleikana sem nú steðja að. Þessi breytta staða felur í senn í sér þrýsting um þátttöku lífeyrissjóða í endurreisn fyrirtækja sem með rekstri sínum standa undir iðgjaldagreiðslum til sjóðanna, sem og tækifæri fyrir sjóðina til að eignast hlutdeild í rekstrarárangri marga ágætra fyrirtækja sem skilað gætu ásættanlegri arðsemi til lengri tíma sé rétt haldið á spilunum," sagði Hrafn á ráðstefnunni, sem haldin var á vegum Capacent Glacier.
Til baka








Senda inn efni

