Ísland fái aðild að umsóknarsjóði ESB
Bloggað um fréttina
-
Guðmundur Jónas KristjánssonESB-hjáleigan Ísland fái ölmusustyrk vegna
-
Óðinn ÞórissonDraga umsóknina til baka
-
Haraldur HanssonWith a spoonful of sugar ...
-
Ómar GeirssonMútur duga ekki Össur minn.
-
Sveinbjörn Ragnar ÁrnasonÍsland að verða að hrepps ómaga ESB ?
-
Lúðvík LúðvíkssonÖLMUSA FRÁ ESB
Til umræðu er nú innan Evrópusambandsins, að Ísland verði sett á lista yfir ríki sem gætu notið stuðnings sjóðs, sem ætlað er að aðstoða svonefnd umsóknarríki, lönd sem sótt hafa um aðild að sambandinu eða eru að undirbúa aðild.
Þetta kom fram hjá Össuri Skarphéðinssyni, utanríkisráðherra, á Alþingi í dag. Össur sagði, að stuðningur sjóðsins gæti verið í formi sérfræðiaðstoðar eða til funda og ráðstefnuhalds. Einnig gæti verið um að ræða bein fjárframlög til afmarkaðra verkefna en það krefðist mótframlags af hálfu ríkjanna sjálfra.
Össur sagði, að sendimenn hefðu komið frá Brussel til Íslands til að ræða þetta sérstaklega. Hann hefði sjálfur rætt við skrifstofustjóra Olli Rehn, stækkunarstjóra Evrópusambandsins, um þetta.
Ráðherrann var að svara fyrirspurn frá Vigdísi Hauksdóttur, þingmanni Framsóknarflokks, sem vildi fá upplýsingar um hvort Íslandi stæðu til boða lán og styrkir frá Evrópusambandinu í tengslum við umsóknarferlið.
Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks, vísaði til viðtals sem Stöð 2 átti við Össur í vikunni þar sem hann sagðist hafa upplýsingar um að allskonar sjóðir og styrkir myndu „dekka" kostnað við aðildarumsóknina að mestu leyti. Össur sagði að allir ættu sína erfiðu daga, þetta hefði verið vitlaust svar í sjónvarpinu og upplýsingarnar rangar.
Ásmundur Einar Daðason, þingmaður VG, notaði tækifærið til að lýsa því yfir að umsóknarferlið væri ekki í hans umboði. Sagði hann að skoðanakannanir sýndu að innan við þriðjungur þjóðarinnar styddi aðildarumsóknina, ekki væri meirihluti fyrir slíku á þingi og því eðlilegast að draga umsóknina til baka. Ólína Þorvarðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, benti á að ályktun um umsókn að ESB hefði verið samþykkt á þinginu í sumar.
Til baka








Senda inn efni

